
Litla Kraftvéladeildin er orðinn fastur liður í íslenska Dota 2 samfélaginu.
Mótið hefur fengið viðurnefnið „pabba-deildin“ þar sem það er sérstaklega hannað fyrir áhugamenn með svokölluðu mmr-cappi sem tryggir að of hátt rankaðir leikmenn geta ekki skráð sig í mótið og raskað jafnvæginu.
Mótið hófst 22. september, lauk 21. nóvember og tók á móti 11 liðum eða 55 leikmönnum auk varamanna.
„Við leggjum upp með að hafa þetta eins þægilegt og sveigjanlegt og hægt er svo fólk geti spilað í ró og næði,“
segir Bergur Árnason úr mótastjórn í samtali við esports.is.
Alltaf var spiluð ein best of 3 umferð í hverri viku og liðin raða sér sjálf niður. Sunnudagar hafa smám saman breyst í helgistund deildarinnar og Bergur hlær þegar hann lýsir „sunnudögum í kraftvéladeildinni“. Þeir hafa margoft orðið að flöskuhálsi þar sem þrjár til fjórar seríur taka yfir kvöldið samtímis.
Úrslitin voru sannkallaður Dota-skammtur. TSR.Reserves sigruðu Óreiðuhnakkana 3–2 í seríu sem fór úr einhliða upphafsleik í hreina adrenalínsprengju undir lokin. TSR.Reserves leiddu 2–0 og virtust ætla að klára þetta auðveldlega en Óreiðuhnakkarnir hittu á kraftmikinn gír og tóku leiki þrjú og fjögur á glæsilegan hátt. Þar átti cromwell stórleik. Fimmti leikurinn fór þó aftur í hendur TSR.Reserves sem náðu góðu midgame-leadi og lokuðu seríunni með stæl.
Verðlaunaféð í ár var 150.000 krónur sem skiptist á þrjú efstu sætin.
TSR.Reserves
Axarinn, KingKriss, B1x, Kaffihaus, Young Pollur og Bleezy
Óreiðuhnakkarnir
QD, Cromwell, Túra, Arneus, Feedlini, p(hdh)=1 og Chacomanjaro
Snorri & Dvergarnir
BT Geimferðir, Glacier, Thunder Bandit, Gleipnir, N.Penguin, Big Boy 😉 og Igner

Helsta markmið Litlu-Kraftvéladeildarinnar hefur frá upphafi verið að opna dyr fyrir nýliða og „noob-friendly“ keppnissenu þar sem vinahópar og áhugaspilarar geta mætt til leiks án þess að vera straujaðir af bestu Dota-liðum landsins. Það hefur gengið vel. Enginn fór taplaus í gegn og enginn fór sigurlaus út. Getustigið í deildinni spannaði allt frá 1000 MMR upp í 7000 MMR eða Immortal-rank. Þrátt fyrir þetta mikla bil hélt keppnin áfram að vera jöfn og spennandi.

Í ár var tekin upp ný regla sem leyfði hverju liði að hafa einn Immortal-spilara, nema ef leikmenn væru úr Úrvalsdeildinni. Sú breyting gaf betri leikmönnum tækifæri til að taka þátt án þess að drepa balancen og reynslan sýndi að stjörnuspilarar einir og sér vinna ekki mót, því aðeins eitt af efstu þremur liðum var með Immortal í sínum röðum.
„Liðsheild og strategía skiptir miklu meira máli en að vera með einn sem er að pumpa,“
segir Bergur.
TSR-sagan vakti einnig mikla athygli í ár. Nokkrir lykilmenn liðsins voru fengnir til að spila í Úrvalsdeildinni með TDR en eftir slakt upphaf dró liðið sig úr keppni og óskaði eftir að fá að taka þátt í Litlu-KVD2 í staðinn.
Mótstjórn fór yfir málið og samþykkti þátttöku, þar sem liðið uppfyllti skilyrði nýju reglunnar. Þar komu líka inn forvitnileg tengsl við fyrra mót, því TSR fengu B1x frá Kuta inn sem offlaner og bættu þannig við sinn sterka grunn. Restin af Kuta tók ekki þátt þetta árið, nema Beygla sem spilaði með Mímklúbbnum.
Óreiðuhnakkarnir og Snorri & Dvergarnir sýndu svo ótrúlegan stöðugleika. Bæði liðin hafa haldið sínum grunni nánast óhreyfðum síðustu ár og eru nú að uppskera. S&D hafa verið sérstaklega teknískir í pick‘um, ekki síst eftir að þjálfarinn þeirra Alvöru Keyrsla, leikmaður RíM, kom að málum og hefur gert liðið mun skipulagðara í draftinu.
„Við erum bara rosalega þakklát fyrir hvað margir tóku þátt, spiluðu af ástríðu og mættu í streymi kvöld eftir kvöld,“
segir Bergur að lokum. Næsta mót, Kraftvéladeildin 5, verður haldið eftir áramót og segir hann að áhuginn hafi aldrei verið meiri.
Flestar seríur mótsins voru streymdar á Twitch og það er ekki sjálfgefið í áhugamannadeild. Þar með hafa leikmenn einnig góðar heimildir fyrir eigin glow-up fyrir næstu önn.
Kraftvéladeildin í Dota 2 er á vegum Rafíþróttasambands Íslands.
Áhugasamir eru hvattir til að taka þátt í samfélaginu, fylgjast með og skrá sig á næsta tímabil.
Hér að neðan má sjá myndir frá úrslitunum í fyrra.
Myndir: aðsendar / Bergur Árnason



























