Author: Chef-Jack
Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]
Spennan magnast í PUBG deildinni þegar aðeins eitt mót er eftir af keppnistímabilinu. Úrslitin ráðast sunnudaginn 1. nóvember þegar liðin berjast um dýrmæt stig, sæti í toppbaráttunni og þátttökurétt á Íslandsmótinu. Þremur mótum af fjórum er lokið og hafa 18 lið tekið þátt í keppninni. Að loknu síðasta mótinu tryggja 16 efstu liðin sér sæti á Íslandsmótinu í PUBG. Omni með örugga forystu Liðið Omni hefur verið í miklum ham á keppnistímabilinu og trónir á toppi deildarinnar með 405 stig eftir 18 leiki. Liðið hefur unnið sex leiki og náð samtals 190 kills. PNGR er í öðru sæti með 330…
Nýi sýndarveruleikaleikurinn PAYDAY: Aces High kemur út 5. nóvember næstkomandi fyrir Meta Quest og SteamVR. Leikurinn er þróaður af sænska fyrirtækinu Fast Travel Games í samstarfi við Starbreeze Entertainment, þar sem Adolf Kristjánsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Tæknivals/BT á Íslandi, gegnir starfi forstjóra. Greint er frá útgáfunni á tölvuleikjavefnum Gematsu, sem vísar í tilkynningu frá Fast Travel Games. PAYDAY: Aces High er samstarfsleikur fyrir allt að fjóra leikmenn þar sem þeir skipuleggja og framkvæma umfangsmikil rán. Leikurinn er sérstaklega hannaður fyrir sýndarveruleika og byggir á þeirri spennu og samvinnu sem einkennt hefur PAYDAY leikjaseríuna. Leikmenn geta meðal annars brotist inn í banka,…
Tölvuleikurinn Ace Combat 8: Wings of Theve hefur selst í meira en einni milljón eintaka á heimsvísu, aðeins viku eftir útgáfu. Aldrei áður hefur leikur í þessari vinsælu flughernaðarseríu náð slíkum sölutölum á jafn skömmum tíma. Þetta kemur fram í tilkynningu frá leikjafyrirtækinu Bandai Namco, sem greindi frá tímamótunum nú á dögunum. Leikurinn kom út 2. október fyrir PlayStation 5, Xbox Series X|S og PC í gegnum Steam. Þeir sem keyptu sérstaka útgáfu leiksins fengu þó aðgang að honum nokkrum dögum fyrr, eða 29. september. Þrjátíu ára saga Ace Combat leikjaserían á sér um 30 ára sögu og hefur notið…
Season 2 skotleiksins WARDOGS kom út í dag, 15. október, með fjölmörgum nýjungum og breytingum á spilun. Leikurinn hefur selst í yfir þremur milljónum eintaka frá því að hann kom út í Early Access á Steam í september. WARDOGS er taktískur fjölspilunarleikur þar sem allt að 100 leikmenn berjast samtímis. Leikurinn er þróaður af BULKHEAD og gefinn út af Team17. Þrumuveður breytir bardögunum Ein stærsta nýjungin er breytilegt veðurfar. Nú þurfa leikmenn að takast á við úrhellisrigningu og þrumuveður sem hefur áhrif á bæði skyggni og hljóð. Þrumur geta meðal annars yfirgnæft fótatak og skapað ný tækifæri til að koma…
Team Vitality tryggði sér meistaratitilinn á ESL Pro League Season 24 í Counter-Strike 2 eftir öruggan 3:0 sigur á MOUZ í úrslitaleiknum sem fram fór í Katowice í Póllandi í gær, sunnudaginn 11. október. Úrslitahelgi mótsins fór fram laugardaginn 10. október og sunnudaginn 11. október, þar sem fjögur lið börðust um verðlaunasætin. Vitality hafði betur gegn Aurora Gaming í undanúrslitum á laugardeginum, á meðan MOUZ lagði Team Spirit. Vitality hafði yfirhöndina í úrslitaleiknum Úrslitaleikurinn fór fram á sunnudeginum og var leikið þar til annað liðið hafði unnið þrjú kort af fimm mögulegum. Vitality byrjaði betur og vann fyrsta kortið, Cache,…
Fjögur af sterkustu Counter-Strike 2 liðum heims mætast í undanúrslitum ESL Pro League Season 24 í dag, laugardaginn 10. október. Mótið fer fram í Katowice í Póllandi og lýkur á morgun, sunnudaginn 11. október. Átta liða úrslitin fóru fram í gær og lauk öllum fjórum viðureignunum með 2:0 sigri. Team Vitality, Aurora Gaming, MOUZ og Team Spirit tryggðu sér þar með sæti í undanúrslitum. Öflug lið mætast í undanúrslitum Team Vitality tryggði sér sæti í undanúrslitum með öruggum 2:0 sigri á PARIVISION. Liðið vann fyrri leikinn á Inferno 13:2 og þann síðari á Dust2 13:10. Aurora Gaming hafði betur gegn…
Nýi skotleikurinn Wardogs hefur slegið í gegn meðal tölvuleikjaspilara og selst í yfir þrjár milljónir eintaka á aðeins 16 dögum. Leikurinn kom út í 10. september síðastliðinn á Steam og hefur notið mikilla vinsælda frá fyrsta degi. Breska leikjafyrirtækið Bulkhead þróaði leikinn en útgefandi hans er Team17. Samkvæmt frétt GamesBeat seldist leikurinn í yfir milljón eintökum á fyrsta sólarhringnum og aðeins fimm dögum eftir útgáfu hafði salan farið yfir tvær milljónir eintaka. Allt að 100 leikmenn í bardaga Wardogs er fjölspilunarleikur þar sem allt að 100 leikmenn geta tekið þátt í sama bardaga. Leikmenn skiptast í þrjú lið sem berjast…
Japan sendi 25 rafíþróttakeppendur á Asíuleikana 2026 sem fram fóru dagana 19. september til 4. október í Aichi og Nagoya í Japan. Keppendurnir tóku þátt í níu leikjatitlum og sjö keppnisgreinum, að því er fram kemur hjá Esports Insider. Þar á meðal voru Street Fighter 6, Tekken 8, Puyo Puyo Champions, Gran Turismo 7, eFootball og Pokémon Unite. Aldursmunurinn á keppendum Japana var talsverður. Sá elsti var 43 ára Sawada Akihito, betur þekktur sem Score, sem keppti í The King of Fighters XV. Yngstur í hópnum var hinn 11 ára Kurihara Yūki, sem keppti í Puyo Puyo Champions og gerði…
Mike Tomlin, fyrrverandi aðalþjálfari Pittsburgh Steelers í NFL deildinni, hefur vakið mikla athygli eftir að hann sýndi í fyrsta sinn borg sem hann hefur byggt í Minecraft undanfarin 12 ár. Mike kynntist Minecraft þegar hann fylgdist með sonum sínum spila leikinn. Hann segist ekki hafa haft næga færni til að keppa í tölvuleikjum en heillaðist af Creative Mode, þar sem leikmenn geta byggt nánast hvað sem þeim dettur í hug. Upphaflega leit hann á Minecraft sem leið til að verja meiri tíma með sonum sínum. Þeir hættu síðar að spila leikinn en Mike hélt áfram að byggja borgina. Sonur hans…
Framtak Bridgesambands Íslands og Rafíþrótta Símans, að senda út leik í beinni útsendingu, viðburður sem varð að veruleika í fyrravetur, rúllar nú aftur af stað, briddsurum til mikillar ánægju. Spilað verður á komandi vetri á sunnudagskvöldum og hefst útsending alltaf klukkan 19. Fyrsta leikinn, 20. september sl., spiluðu Áhöfnin á Halastjörnunni gegn norska kvennalandsliðinu. Til að gera langa sögu stutta rústuðu norsklu stelpurnar íslensku strákunum og var sigur þeirra aldrei í hættu. Munaði þar mestu um sagnhörku kvenpeningsins umfram karldýrin. Þegar geimin sem íslensku herrarnir slepptu og slemman sem norsku dömurnar melduðu en ekki Íslendingarnir lá allt til vinnings, var…
