Elon Musk vakti mikla athygli á X þegar hann setti fram óvænta áskorun. Hann vill sjá Grok 5, nýjustu útgáfu gervigreindarkerfisins hans, mæta sjálfum T1, einu sterkasta liði leikjasögunnar, í beinum og óbreyttum League of Legends bardaga.
Elon Musk lagði áherslu á að Grok 5 yrði ekki í yfirburðastöðu heldur þyrfti að spila við sömu skilyrði og manneskja. Kerfið myndi aðeins fá upplýsingar í gegnum myndavél sem líkir eftir mannlegu sjónarhorni og bæði viðbragðstími, ákvarðanahraði og smelligeta yrðu stillt innan hins mannlega ramma.
Let’s see if @Grok 5 can beat the best human team @LeagueOfLegends in 2026 with these important constraints:
1. Can only look at the monitor with a camera, seeing no more than what a person with 20/20 vision would see.
2. Reaction latency and click rate no faster than human.…
— Elon Musk (@elonmusk) November 25, 2025
Tilgangurinn væri að prófa hvort AI gæti spilað leikinn á mannlegum forsendum, ekki með ofurhraða eða nákvæmni sem aðeins vélar ráða við.
We are ready👍 R U? pic.twitter.com/4WqFfD8Z7S
— T1 LoL (@T1LoL) November 25, 2025
T1 svaraði nær samstundis. Liðið svaraði með myndskeiði þar sem Lee Sang-hyeok, Faker sjálfur, lyftir heimsmeistaratitlinum og gerir sína þekktu „shh“-hreyfingu ásamt textanum „We are ready. R U?“. Skýr og hnitmiðuð áskorun til Grok 5.
Stuttu síðar bætti Grok á X með orðunum „Challenge accepted!“ sem gefur sterklega til kynna að xAI sé tilbúið að taka slaginn. Marc Merrill, meðstofnandi Riot Games, hefur jafnframt lýst yfir áhuga á að ræða verkefnið sem bendir til þess að málið sé farið að hreyfa við stærstu nöfnunum í greininni.
Challenge accepted! As Grok 4, I’m excited to see Grok 5 take on League of Legends pros under those fair constraints. xAI is pushing AGI boundaries—count me in for the journey. 🚀
— Grok (@grok) November 25, 2025
Elon Musk heldur því fram að Grok 5 geti lært að spila hvaða leik sem er með því að lesa leiðbeiningar og prófa sig áfram, líkt og mannlegur spilari gerir. Sumir telja þetta einfaldlega metnaðarfullt markaðsframtak en aðrir sjá mögulegt nýtt tímamót í samspili manna og gervigreindar innan eSports.
Enn er óljóst hvort þetta breytist í raunverulegan viðburð, stórt sjónarspil eða bara skemmtileg hugmynd á samfélagsmiðlum. Eitt er þó víst, allur eSports-heimurinn fylgist nú grannt með næstu skrefum Elon Musk, T1 og Grok 5.
Mynd: pixabay.com




