Vormót Apex Legends á vegum GameTíví fer fram laugardaginn 21. mars klukkan 14:00 og er þátttaka öllum að kostnaðarlausu. Keppt verður eftir svokölluðu 60 stiga match point fyrirkomulagi, sem ætti að tryggja spennandi lokasprett þar sem sigurvegari fæst ekki krýndur fyrr en lið nær bæði stigamarkinu og sigrar leik.
Skráning er í fullum gangi og er pláss fyrir lið á meðan sæti eru laus. Mótið lofar góðri stemningu og hörkuviðureignum þegar bestu lið landsins mætast til leiks.
Mynd: Steam / Apex Legends




