
Mynd: Facebook / Ívar Eyþórsson
Íslenska Gran Turismo Samfélagið hélt lokahóf sitt í gær, 8. maí, í húsakynnum Kvartmíluklúbbsins í Hafnarfirði þar sem meðlimir samfélagsins komu saman og fögnuðu tímabilinu með góðri kvöldstund.
eSports.is hefur áður fjallað um samheldið samfélag íslenskra Gran Turismo áhugamanna sem hefur byggt upp öflugan kjarna í kringum akstursherma og keppnir hér á landi.
Húsið opnaði klukkan 19:00 og stóð dagskráin fram eftir kvöldi, en lokað var klukkan 01:00. Boðið var upp á veislu að hætti GTSI þar sem 150 gramma steikarborgarar og drykkir voru í boði fyrir gesti. Allur ágóði af sölunni rann beint til samfélagsins og starfsemi þess.
Miðaverð á viðburðinn var 5.000 krónur. Einnig var í boði pakki með borgara og drykk á 7.500 krónur, ásamt stærri pakka með tveimur borgurum og drykk á 9.000 krónur.



