Japan sendi 25 rafíþróttakeppendur á Asíuleikana 2026 sem fram fóru dagana 19. september til 4. október í Aichi og Nagoya í Japan.
Keppendurnir tóku þátt í níu leikjatitlum og sjö keppnisgreinum, að því er fram kemur hjá Esports Insider. Þar á meðal voru Street Fighter 6, Tekken 8, Puyo Puyo Champions, Gran Turismo 7, eFootball og Pokémon Unite.
Aldursmunurinn á keppendum Japana var talsverður.
Sá elsti var 43 ára Sawada Akihito, betur þekktur sem Score, sem keppti í The King of Fighters XV. Yngstur í hópnum var hinn 11 ára Kurihara Yūki, sem keppti í Puyo Puyo Champions og gerði sér lítið fyrir og vann gullverðlaun.
Rafíþróttir komu fyrst inn á Asíuleikana sem sýningargrein árið 2018 en urðu opinber verðlaunagrein á leikunum í Hangzhou árið 2023.
Á Asíuleikunum í ár var keppt í 13 leikjatitlum í 11 keppnisgreinum. Alls voru 11 leikjatitlar nýir frá síðustu leikum.
Mynd Pixabay




