
Það verður sannkölluð Counter-Strike veisla í Next Level Gaming í Egilshöll laugardaginn 21. nóvember þegar úrslit Íslandsmeistaramóts Ljósleiðaradeildarinnar ráðast.
Lið Dusty er komið í úrslitaleikinn þar sem það mætir annaðhvort Þór Akureyri eða Þór Þorlákshöfn. Úrslitaviðureignin hefst kl. 18:00 og verður leikin samkvæmt BO5-fyrirkomulagi, þar sem það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki stendur uppi sem Íslandsmeistari.
Upphitun fyrir úrslitaleikinn hefst kl. 17:15 þar sem lýsendur mótsins fara yfir viðureignina, meta möguleika liðanna og spá fyrir um úrslitin.
Fjölbreytt dagskrá fyrir gesti
Dagskráin hefst kl. 13:00 með Wingman-móti á vegum Next Level Gaming þar sem keppt verður um glæsilega vinninga. Enn eru nokkur laus sæti í mótið og fer skráning fram á Scrim.is.
Gestum gefst einnig kostur á að taka þátt í sérstakri Counter-Strike áskorun þar sem vinningar frá Lenovo og Red Bull verða í boði, meðal annars Lenovo Legion tölvuskjár.
Lukkuhjól Red Bull verður jafnframt á staðnum þar sem þátttakendur geta unnið drykki, ýmsan varning og jóladagatöl. Þeir heppnustu geta jafnvel farið heim með heilan kassa af Red Bull.
Boðið verður upp á Happy Hour á barnum og sérstakt tilboð á mat frá Shake and Pizza.
Íslandsmeistarar krýndir í lok kvölds
Að úrslitaleiknum loknum verður Íslandsmeistarabikarinn afhentur sigurliðinu. Þá verða einnig veitt sérstök verðlaun fyrir besta leikmann mótsins (MVP) í boði Next Level Gaming.
Allir áhugamenn um Counter-Strike eru hvattir til að mæta í Egilshöll og fylgjast með þegar Íslandsmeistarar haustsins verða krýndir.



