Close Menu
    Nýjar fréttir

    Íslenskur tölfræðivefur fyrir CS2

    26.11.2026

    Dusty Íslandsmeistarar í Counter-Strike 2026

    24.11.2026

    Þór Þorlákshöfn, Selfoss Academy, Samviskan og TurboStorm fögnuðu sigri

    20.11.2026

    Úrslitakvöld Ljósleiðaradeildarinnar í Counter-Strike á laugardag

    19.11.2026
    1 2 3 … 359 Next
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    esports.is
    • Forsíða
    • Tölvur og leikir
      • Íslenskt efni
      • Rafíþróttir
      • Mót framundan
      • Væntanlegt
      • Nintendo
      • PC leikir
      • Playstation
      • Xbox
    • Leikjarýni
      1. Leikjarýni
      Featured
      90

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      By Chef-Jack12.08.2025
      Recent
      9.0

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      12.08.2025
      7.0

      Leikjarýni: RC-leikurinn Recharge kemur á óvart

      07.08.2025
      5.0

      Leikjarýni: Tónlistin heillar, en leikurinn sjálfur nær ekki sömu hæðum – þarfnast enn talsverðrar yfirferðar

      30.06.2025
    • Auglýsa?
    • Um okkur
      • Hafðu samband
      • Auglýsa?
      • Fréttabréf
      • Um vefinn
      • Íslenskar Fb grúppur
    • Klönin
      • Klön yfirlit
      • Dusty
      • Oldies Samsteypan
    • is
      • is
      • en
    esports.is
    Home»Rafíþróttir - Lan-, online mót»Íslenskur tölfræðivefur fyrir CS2
    Íslenskur tölfræðivefur fyrir CS2
    Rafíþróttir - Lan-, online mót

    Íslenskur tölfræðivefur fyrir CS2

    By Chef-Jack26.11.20262 Mins Read
    Share
    Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link

    Íslenskur tölfræðivefur fyrir CS2

    Embrek Snær Arnarsson kynnti nýjan tölfræðivef fyrir íslenskan Counter-Strike í Facebook-hópnum Counter-Strike á Íslandi. Þar geta leikmenn flett sjálfum sér upp, borið frammistöðu sína saman við aðra íslenska leikmenn og skoðað úrslit úr mótum allt aftur til ársins 2023.

    Við kynningu vefsins voru þar skráðir 1.925 leikmenn og 470 lið. Alls náði tölfræðin til 107 móta, 4.115 leikja og 7.578 spilaðra korta. Gögnin koma úr mótum Rafíþróttasambands Íslands (RÍSÍ) á Challengermode frá 2023 og Flux frá 2026, auk móta á scrim.is frá 2026.

    Hver leikmaður með sína síðu

    Hver leikmaður á sína síðu þar sem meðal annars má sjá frammistöðueinkunn, kill/death ratio (K/D), meðalskaða í hverri lotu (ADR) og hvernig honum hefur gengið á hverju korti.

    Íslenskur tölfræðivefur fyrir CS2

    Úr leikjaupptökum á Flux og scrim.is fæst ítarlegri tölfræði. Þar má til dæmis bera saman skotnákvæmni leikmanna, frammistöðu þeirra í fyrstu viðureignum lotunnar og hvernig þeim gengur þegar þeir standa einir eftir gegn andstæðingunum.

    Úrslit, meistarar og met

    Á vefnum má einnig skoða innbyrðis viðureignir liða, fyrri meistara og ýmis met. Þar má meðal annars sjá að Dusty vann Þór 3–0 í úrslitum Íslandsmeistaramóts Ljósleiðarans 2026 og að Tony úr Dusty var með hæstu frammistöðueinkunn mótsins, 1,43 á tíu kortum.

    Embrek tók fram í kynningu sinni að vefurinn væri enn í vinnslu og að einhverjar upplýsingar gætu verið rangar eða vantað. Hann hvatti leikmenn til að senda ábendingar og tillögur á [email protected].

    Skoða tölfræðivefinn á cs2.is

    Myndir: Skjáskot af tölfræðivefnum cs2.is.

    Dusty Íslenskt efni Rafíþróttasamband Íslands Tölfræðivefur - CS2.is Þór Þorlákshöfn
    Share. Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Chef-Jack

    Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

    Tengdar færslur

    Dusty Íslandsmeistarar í Counter-Strike 2026

    24.11.2026

    Þór Þorlákshöfn, Selfoss Academy, Samviskan og TurboStorm fögnuðu sigri

    20.11.2026

    Úrslitakvöld Ljósleiðaradeildarinnar í Counter-Strike á laugardag

    19.11.2026

    TurboStorm með yfirburðasigur

    17.11.2026
    Við mælum með

    Dusty Íslandsmeistarar í Counter-Strike 2026

    24.11.2026

    Omni sigraði íslensku PUBG deildina

    03.11.2026

    Ísland kemur í Euro Truck Simulator 2 í nóvember

    30.10.2026

    Rafíþróttaliðið Dusty til sölu

    26.10.2026
    1 2 3 … 12 Next
    Mest lesið
    • Dusty Íslandsmeistarar í Counter-Strike 2026
      Dusty Íslandsmeistarar í Counter-Strike 2026
      24.11.2026
    • Counter-Strike 2
      Þór Þorlákshöfn, Selfoss Academy, Samviskan og TurboStorm fögnuðu sigri
      20.11.2026
    • Íslenskur tölfræðivefur fyrir CS2
      Íslenskur tölfræðivefur fyrir CS2
      26.11.2026
    Leikjarýni í vinnslu

    12. ágúst 2025
    Nýjasta leikjarýnin komin út: Echoes of the End

    7. ágúst 2025
    Nýleg leikjarýni: Recharge.

    30. júní 2025
    Nýleg leikjarýni: The Book of Aaru.

    Fleiri leikjarýni hér.

    esports.is
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    • Forsíða
    • Auglýsa
    • Tölvuleikir
    • Um vefinn

    Type above and press Enter to search. Press Esc to cancel.