EVE Fanfest 2026 nálgast með fullum krafti og nú hafa skipuleggjendur tilkynnt dagskrá og alla viðburði Fanfest-vikunnar. Hátíðin fer fram dagana 14. til 16. maí 2026 í Hörpu í Reykjavík, með fjölbreyttum viðburðum sem teygja sig einnig yfir dagana í kringum aðalhátíðina.
Á dagskránni má finna bæði klassíska Fanfest-viðburði sem margir aðdáendur þekkja vel, sem og nýjar og spennandi uppákomur sem dreifast um borgina. Markmiðið er skýrt, að bjóða upp á upplifun sem sameinar EVE Online samfélagið, leikjamenningu og Reykjavík sjálfa.
Sumir viðburðir verða opnir öllum og án aðgangseyris, á meðan aðrir krefjast miða. Skipuleggjendur minna á að ýmsar upplifanir hafi selst hratt upp fyrri ár og því sé ráðlagt að tryggja sér miða tímanlega.
Smellið hér til að skoða alla dagskrána.
Meðfylgjandi myndir eru frá EVE Fanfest í fyrra.
Myndir: facebook / EVE Online





