
Mynd: Skjáskot úr myndbandi.
Stemningin í kringum Arc Raiders hefur tekið snarpa beygju eftir áramót. Leikurinn var fram að þessu nánast óumdeilt uppáhald meðal nördanna, að undanskilinni umdeildri notkun á gervigreindarröddum, hefur umræðan nú færst yfir í sívaxandi vandamál tengd svindli. Þróunarteymið hjá Embark Studios virðist þó vera komið með nóg og hefur gripið til mun harðari aðgerða en áður.
Shroud missti þolinmæðina
„whats the point of f*ckin playing?“
shroud on the state of cheaters in ARC Raiders… pic.twitter.com/8uzpMiTLkB
— Shroud Updates (@ShroudUpdate) January 6, 2026
Umræðan hitnaði verulega í kringum 6. janúar þegar streymarinn Shroud missti þolinmæðina í beinni útsendingu og spurði, með nokkrum litríku orðavali, hvert væri eiginlega pointið með því að spila. Aðrir stórir streymarar á borð við Ninja og Nadeshot tóku í sama streng og gáfu skýrt til kynna að ef ekkert breyttist myndu þeir einfaldlega færa sig yfir í næsta leik á listanum.
Kossaflens í Arc Raiders
Á sama tíma kvörtuðu margir yfir því að PC-spilarar gætu opnað stillingar í leiknum og slökkt á ýmsum sjónrænum þáttum, sem gaf þeim nær yfirnáttúrulega sýn á aðra spilara. Embark brást við með patch 13. janúar sem lagaði nokkra PvP-galla og lokaði á svokallað key card-spoof svindl. Þar á undan hafði komið lagfæring sem fjarlægði aðgang að þessum stillingum alfarið, með þeirri skýringu að þær hefðu aldrei átt að vera aðgengilegar í útgáfu leiksins.
Nú virðist hins vegar hafa verið skrúfað verulega upp í harðri bannstefnu. Samkvæmt færslum á samfélagsmiðlum og umræðum á Reddit hafa streymarar greint frá því að svokallaðir stream snipers, leikmenn sem reyna markvisst að lenda í sama leik og streymari til að nýta sér útsendinguna, séu loksins að fá refsingu við hæfi. Myndir af tilkynningum um bann hafa farið á flug, og þar er ekki verið að tala um væga áminningu.
not even 30 minutes later and theyre banned😭 https://t.co/QxBqjMaGo5 pic.twitter.com/aY2AtwALEC
— aimkey (@aimkeyx) January 16, 2026
Í einu tilfelli birtist skilaboð sem hefjast á orðunum „Permanently suspended“ og fylgja þeim skýringar um að reikningurinn hafi verið varanlega lokaður vegna alvarlegra brota á siðareglum leiksins. Aðgangur verði ekki endurheimtur. Þetta er talsverð stigmögnun frá 30 daga banni sem áður voru við lýði og sendir skýr skilaboð um að þolinmæði Embark sé á þrotum.
Flest dæmin sem hafa komið upp hingað til tengjast einmitt stream sniping. Þar getur fjöldi áhorfenda reynt samtímis að komast í sama leik og streymari, og þegar það tekst er bein útsendingin notuð sem eins konar wallhack í rauntíma. Það að þessi hegðun sé nú tekin föstum tökum bendir til þess að Embark ætli sér að vernda bæði streymara og almenna PvP-spilara.
Streymarinn Tfue fékk 30 daga bann
Í miðju þessu öllu lenti streymarinn Tfue tímabundið í vandræðum þegar hann fékk 30 daga bann fyrir nokkrum dögum. Sumir töldu að hann hefði einfaldlega sýnt of mikið í beinni útsendingu þegar hann var að benda á veikleika í leiknum, aðrir köstuðu fram órökstuddum ásökunum um notkun macro-verkfæra. Bannið var síðar dregið til baka, sem bendir til þess að þar hafi um mistök verið að ræða, fremur en hluta af nýju varanlegu bannstefnunni.
Hvort þessi harka dugi til að hreinsa til í Arc Raiders á eftir að koma í ljós. En eitt er víst. Þegar varanlegt bann blasir við fyrir þá verstu, þá hættir þetta að vera leikur og verður að alvöru refsing. Það eitt og sér gæti verið akkúrat það sem PvP-samfélagið þurfti.



