Author: Chef-Jack

Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

Þau lið sem eru ekki fullskipuð á lanmótið HR-ingurinn geta auglýst annað hvort á facebook síðu lanmótsins eða hér á Lan- og Onlinemót spjallsvæðið. Adminar mótsins munu ekki aðstoða lið við að finna einstaklinga til þess að mynda fullskipað lið.  Á setningardegi munu adminar mynda lið úr clanleysulistanum sem dæmi: 20 manns skráðir í CS = 4 lið. Adminar munu ekki reyna að ráðstafa clanleysulista í ófullskipuð lið, en það er alfarið á ábyrgð liða að fylla liðið sitt.  Ef að þú telur að liðið verði ekki fullskipað fyrir keppni getur þú leyst upp liðið, og allir í liðinu geta…

Lesa meira

Í kína er ár hundsins og af því tilefni hefur Team Fortress 2 teymið ákveðið að bæta við nokkrum hlutum við leikinn, exi, hjálm, Neon skilti svo eitthvað sé nefnt. Muffin-King ákvað að prufa TF2 og spilaði sem Scout og það verður nú að segjast að hann er ansi nettur sem Scout, en fréttamaður eSports.is hefur spilað TF2 í langan tíma og enn hefur ekki náð tökum á Scout líkt og Muffin-King gerir, en þess ber að geta að fréttamaður er nær all Sniper. Muffin-King hefur sett myndband inn á Youtube þar sem hann valtar yfir alla  á public server.…

Lesa meira

Skjálfta admin´s eru heldur betur snöggir að bregðast við þegar kemur að setja upp servera og svörun við fyrirspurnum ofl.  eSports.is birti frétt um hvort hægt yrði að setja upp einn DayZ server eftir að dEMENte vakti athygli á því á spjallinu, og voru simnet admin´s búnir að skrifa facebook athugasemd við fréttina innan við klukkustund um að það væri í vinnslu. Schnitzel einn af Simnet admin´s hefur nú sett upp Left 4 dead 2 server sem hægt er að nálgast með því að smella hér. Glæsilegt framtak hjá simnet admin´s.

Lesa meira

Íris Kristín Andrésdóttir, einn aðaleigendi íslenska leikjafyrirtækisins Gogogic, hefur starfað hjá fyrirtækinu síðastliðin sex ár og nú síðast sem aðalframleiðandi. Í maí síðastliðnum var henni boðið starf hjá bandaríska útgáfufyrirtækinu Meteor Entertainment sem hún þáði, en fyrirtækið mun meðal annars sjá um útgáfu fyrstu persónu skotleiksins HAWKEN. Nördar Norðursins birta ítarlegt viðtal við Írisi sem hægt er að lesa með því að smella hér. eSports.is vakti athygli á viðtalinu við Írisi á facebook síðunni, en þar skrifaði Íris athugasemd og hvetur íslendinga til að skrá sig í betuna: „Að sjálfsögðu skella sér á www.playhawken.com og skrá sig í Betuna! :)“.…

Lesa meira

Íslenskir DayZ spilarar eru að fjölga ansi mikið sem spila leikinn daglega, streamandi DayZ og er íslenska DayZ samfélagið í hálfgerðu í lausu lofti og sárvantar góðan íslenskan server til að spila á. Spilarinn dEMENte skrifar á spjallinu og athugar hvort hægt væri að fá einn af simnet CS1.6 serverum í DayZ. „Ég sé að Simnet eru að halda uppi þónokkrum CS1.6 serverum sem eru lítið sem ekkert notaðir og væri því ekki pæling í að nota þessa servera í leik sem er virkur?“ segir dEMENte meðal annars á spjallinu. Á eftirfarandi vefslóðum eru leiðbeiningar á uppsetningu á DayZ server:…

Lesa meira

Það má með sanni segja að lanmótið HR-ingurinn er fagnað af leikjasamfélaginu en 56 lið eru nú skráð á lanmótið. Meðfylgjandi myndir er af aðstöðunni, en allir verða á annari hæðinni í byggingunni sem er kölluð sólin, en Starcraft 2 fólkið verður á þriðju hæðinni. Liðin sem skráð eru á lanmótið: 13x „lið“ skráð í starcraft 2, en SC2 er einstaklings keppni 23x lið í League of Legends 9x lið í Counter Strike Source 11x lið í Counter Strike 1.6 „Ekki eru öll liðin fullskipuð en um 250 einstaklingar eru skráðir, aldrei áður hefur verið jafn mikil skráning á HR-inginn“,…

Lesa meira

„Til hamingju HoBKa- fyrir að vera stigahæsti leikmaðurinn á á hitting TEK manna“, en þetta kemur fram á facebook síðu TEK manna, en HoBKa- var stigahæstur á Battlefield 3 hitting í fyrradag.  „Það voru þó alltof fáir sem mættu þetta kvöldið, vonandi eru það sumarfrí sem eru að hafa áhrif“, sagði einn af TEK meðlimur aðspurður um hvort fjölmennt hafi verið á hittingnum. Það er Tölvutek sem gefur stigahæsta leikmanni kvöldins glæsilega Gigabyte Krypton músamottu í vinning fyrir stigahæsta spilarann. Hvetjum alla að kíkja á TEK leikjaþjóninn „TEK.BF3 – Tolvutek“ alla sunnudaga.

Lesa meira

Fyrir nokkrum mánuðum var íslenska Team Fortress 2 ( TF2) samfélagið vel virkt og voru íslensku simnet serverarnir vel virkir.  Núna yfir sumarið hefur samfélagið ekki verið nógu sterkt enda búið að vera bongó blíða í allt sumar og margir hverjir allt annað hugsa en að spila TF2. Nokkrir eldhressir TF2 spilarar ræddu við eSports.is um að taka upp þráðinn sem frá var horfið í byrjun árs þegar haldnir voru Team Fortress 2 hittingar á hverjum laugardegi, en þessir stráka eru í TF2 claninu Skjálfti.  Í Skjálfta eru 12 members og þar af nokkrir Simnet admin´s.  Skjálfti eru með steam…

Lesa meira