Author: Chef-Jack
Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]
Á meðylgjandi mynd má sjá tvo þekkta StarCraft 2 spilara þeir Alli „icemodai“ og Grettir „wGbBanzaii“, en þeir koma til með að lýsa leikjunum í kvöld. Gaman að sjá svona vel uppáklædda lýsendur. Ekki verður streamað frá leikjunum, en Eddy fréttaritari eSports.is kemur til með að vera með „beina útsendingu“ frá leikjunum hér. Mynd: Eddy
Keppendur í íslenska Barcraft mótinu eru byrjaðir að hita upp, en keppt verður í leiknum Starcraft 2. Þeir keppendur sem koma til með að keppa eru: 1.iMpsuNi 2.GEGTchrobbus 3.iMpKaldi 4.nWaNavi 5.Drezi 6.nWaKit 7.nWaDemo 8.wGbNykur Meðfylgjandi mynd tók Eddy fréttaritari eSports.is.
Núna stendur yfir mikill undirbúningur fyrir fyrsta íslenska BarCraft mótið sem haldið verður á Classic Rock sportbar við Ármúla 5. Fréttaritari eSports.is Eddy er á staðnum og tók hann meðfylgjandi mynd, en eitthvað var hann á skjálftavaktinni þar sem myndin er frekar hreyfð. Fleiri myndir væntanlegar og þá minni hreyfðar 🙂 .
Top 8 bestu StarCraft 2 spilarar Íslands keppa í kvöld (laug. 19. maí) á Classic Rock sportbar, Ármúla 5 og hefst mótið klukkan 18°° og stendur yfir til miðnættis. 48 manns hafa boðað komu sína og má reikna með því að fleiri mæti á staðinn. Leikjunum verður lýst á staðnum af íslenskum StarCraft 2 spilurum, en ekki verður streamað frá mótinu. Eddy fréttamaður eSports.is verður á staðnum og fylgist vel með og kemur til með að birta hér myndir, úrslit og fleiri uppákomur, stay tuned. Facebook síða íslenska StarCraft 2 samfélagsins. Fylgstu með eSports.is á facebook hér.
Það getur oft á tíðum verið áhugavert að fylgjast með íslenska leikjasamfélaginu á facebook grúppum, en mörg skemmtileg málefni poppa upp öðru hverju. 14. maí síðastliðinn póstaði einn spilari á hinar og þessa grúppur og auglýsti að stofnuð hefur verið World Of Warcraft grúppa á facebook fyrir íslenska WoW spilara. Frá því að þessi einstaklingur byrjaði að auglýsa hafa einungis 8 meðlimir farið í grúppuna og hefur verið frá byrjun alveg steindauð. Sumir eru því miður ekki með hugan að því að þegar stofnuð er facebook grúppa, því að sá sami þarf að hugsa vel um hana og koma henni…
Þriðja útgáfa af Diablo tölvuleiknum var gefin út í vikunni sem tölvuleikjarisinn Blizzard framleiðir. Ríflega áratugur er síðan önnur útgáfa leiksins kom út, seldist í tæplega 20 milljónum eintaka og vann til fjölda verðlauna. Leikurinn er hasar- og hlutverkaleikur þar sem leikmaðurinn kannar framandi dýflissur og hittir þar fyrir hin ýmsu skrímsli og kynjaverur, en frá þessu greinir mbl.is. Til að spila leikinn þarf leikmaðurinn að auðkenna sig með innskráningu en opnað var fyrir innskráningar á sama tíma í öllum löndum Evrópu. Þúsundir leikmanna reyndu þá að skrá sig inn í leikinn með þeim afleiðingum að netþjónar framleiðanda leiksins þoldu…
d0ct0r_who tilkynnti í nótt á spjallinu að nú væri í fullum undirbúningi að setja af stað Íslenskt Battlefield samfélagið, en stofnað verður platoon á Battlellog þar sem einungis íslenskir spilarar mega joina. „Í þetta verkefni vantar mér nokkra spilara sem eru virkir og tilbúnir að leggjast í þetta með mér“, segir d0ct0r_who að lokum, en allar nánari upplýsingar er hægt að finna á spjallinu með því að smella hér.
Svona er skipulagið á BarCraft mótinu | eSports.is fylgist með | Úrslit, myndir og fleiri uppákomur
BarCraft mótið í StarCraft 2 leiknum er rétt handan við hornið, eða laugardaginn 19. maí næstkomandi og hefst klukkan 18°° Hægt verður að fylgjast með ladder úrslitum hjá leikmönnum á á Sc2ranks hér. Hér að neðan er skipulagið á mótinu: 18:00 sUni Vs Nykur 18:45 Chrobbus vs Demo 19:30 Kaldi vs kit 20:15 Drezi vs Navi 21:00 Semi finals 1 22:00 Semi finals 2 23:00 Finals 24:00 Veðlaunaafhending 00:15 móti lýkur Map poolið er: Round 8 – Cloud Kingdom Round 4 – Metalopolis Finals – Anitga Shipyard Sá sem tapar fyrstu viðureigninni fær að velja map úr þessum lista: Metropolis…
Kvöldopnun vegna útgáfu leiksins, Diablo 3 hófst í kvöld í Elko Lindum, en húsið opnaði klukkan 22°°. Meðfylgjandi myndir tók Eddy fréttaritari eSports.is og einn af stjórnendum af íslenska Diablo III samfélagsins á facebook. Fylgstu með eSports.is á facebook hér.
Call of duty:Modern Warfare 3 liðið Konv!cteD (kNv) leitar nú af einum spilara til að bæta við í clanið sitt, en meðlimir í kNv hafa spilað þennann leik síðan að hann kom út undir mismunandi pug nöfnum. Í liðinu eru Rascal, beNto, Frimbo, Bullzeye og TheChosenOne, en nánari upplýsingar er hægt að nálgast á spjallinu hér. divi5ion ættu nú margir í íslenska Counter Strike Source samfélaginu að þekkja, en þeir ætla sér að bæta við einum manni í liðið sitt. Allar nánari upplýsingar er hægt að nálgast á spjallinu með því að smella hér. Hvetjum öll lið í hvaða leikjum…
