Author: Chef-Jack

Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

Það getur ýmislegt gerst og sagt á Mumble þegar verið er að keppa í tölvuleikjum eins og heyra má í meðfylgjandi myndbandi sem að dannoz póstaði á spjallið þar sem íslenska Counter Strike:Source myR.is clanið fer á kostum. Allt er nú þetta sagt í léttum dúr og allir vinir eftir scrimið 🙂

Lesa meira

Hópur fólks hefur hótað Electronic Arts (EA), einu stærsta tölvuleikjafyrirtæki heims, að hætta öllum viðskiptum við fyrirtækið. Af hverju? Vegna þess að  EA hefur ákveðið að gefa spilurum þann valmöguleika á að vera samkynhneigður karakter í einum af vinsælustu leikjum þeirra; Star Wars: The Old Republic. Þetta og nánari umfjöllun er hægt að lesa á vefsíðunni nordnordursins.is hér. Meðfylgjandi myndband er GameSpot umfjöllun um leikinn:

Lesa meira

Greint var frá fyrir helgi að skráning í Team Fortress 2 online mót var hafið og til stóð að halda mótið á sjálfum Páskadag.  Ekki varð nógu góð þátttaka í mótið og voru einungis tvö lið sem sýndu áhuga, en skráðu sig ekki. TF2 spilarar voru hæstánægðir með framtakið, en höfðu orð á því að of stuttur skráningarfrestur væri og þyrfti að vera lengri tími í skráningu til að vel heppnast. „Ég var búinn að fá íslenskan Team Fortress 2 server og synd að ekki skuli hafa náðst í nokkur lið.  Ég er að fara á sjóinn og verð ekki…

Lesa meira

Starcraft 2 spilararnir í íslenska claninu wGb, Jökull ,,Kaldi“ Jóhannsson og Stefán ,,Shake“ Sigurðsson hafa ákveðið að skipta um clan og spila fyrir bandaríska clanið Impulse Esports, en þetta kemur fram á vef wGb.is. „Fyrir nokkrum mánuðum spiluðum við Clanwar við þá og þeir voru mjög vinalegir og spiluðu mjög vel. Við höfðum verið að leita að clani í nokkurn tíma svo ég spjallaði við managerinn þeirra, en þeir höfðu séð okkur spila og höfðu áhuga á að fá okkur til liðs við sig“, sagði Kaldi í samtali við eSports.is aðspurður um hvernig það stóð til að þeir færu yfir…

Lesa meira

„Við bjuggum síðuna og leikjaþjóninn til alveg sjálf og settum þetta allt saman upp. Við sjáum líka um fjármálin sjálf, en ef það verður of flókið þarf mamma stundum að hjálpa okkur,“ segir hinn 14 ára gamli Guðni Natan Gunnarsson í samtali við Fréttablaðið um heimasíðuna osom.is sem hann heldur úti ásamt tvíburasystur sinni, Sigríði Stellu Gunnarsdóttur. Heimasíðan er kynningarsíða fyrir leikjaþjóninn osom.is í leiknum Minecraft.  Eitthvað virðist vera hálfklárað verkefni hjá þeim á heimasíðunni, en ekki er hægt að fara á síðuna beint með osom.is, heldur þarf að skilgreina www. á undan léninu, þ.e. www.osom.is.

Lesa meira

Það er búið að vera miklar uppfærslur í dag á eSports.is og má þar nefna Shoutbox sem hefur verið gert virkt hér til hægri á forsíðunni sem inniheldur einnig einkaspjall ( private chat ), skipt var út gamla comment kerfinu í fréttunum í facebook comment og nú það nýjasta er könnunaform. Takið þátt í könnun: [poll id=“2″]

Lesa meira

Við höldum áfram að betrumbæta eSports.is, en við bættum við Shoutboxi ásamt einkaspjalli í dag og nú er búið að skipta út gamla comment kerfinu í fréttunum í facebook comment sem flest allir ættu nú að kannast við. Hafið það hrikalega gott um páskana og ekki borða yfir ykkur af páskaeggjum 🙂

Lesa meira