Author: Chef-Jack
Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]
Núna stendur yfir undirbúningur að hefja Counter Strike:Source online mót og mun dagsetning og nánari upplýsingar um skráningu ó mótið vera upplýst síðar með annarri frétt. eSports.is hefur fengið til liðs við sig meistarana CaPPiNg!, aNdrehh sem admin´s og berum við þeim bestu þakkir fyrir. Allar upplýsingar verða birtar á spjallsíðunni hér. (ath. að þegar þetta er skrifað þá eru engar upplýsingar komnar á þetta svæði, en koma síðar)
Eitthvað virðist vera rólegt í íslenska Counter Strike 1.6 samfélaginu, þar sem einungis þrjú lið eru skráð í online mótið, en skráning hófst 12. mars síðastliðin. Eftirfarandi lið eru nú þegar skráð: STUSSY dbsc zeroPoint „Skráning endar 22. mars s.s sunnudaginn í næstu viku , ég er búinn að tala við kísildal um mögulegt spons en hann þarf að vita hversu mörg lið eru skráð og hvenær mótið byrjar“, segir Biggzterinn mótshaldari í fréttatilkynningu sinni á /hl. Fylgstu með eSports.is á facebook hér.
Nú er það staðfest, en Diablo III kemur út 15. maí næstkomandi, en þetta kemur fram á vefnum battle.net í dag. Það er spurning um að henda kærustunni/konunni í helgarfrí með saumaklúbbnum og hringja sig inn veikan í vinnunni og spila sig geðveikan fyrstu dagana eftir útgáfudag?
Platlower mót verður í Starcraft 2 í dag klukkan 17°° og verður fyrirkomulagið næstum því eins og GSL, þ.e. þú færð að vera með. Verðlaun eru ekki í kóreskum pening heldur íslenskum, segir í tilkynningu inn á facebook síðu Íslenska StarCraft 2 samfélaginu. Kastað verður upp á finals og semi finals og munið að vera stilltir inn á Wolf_masterz Tv um klukkan 22 í kvöld fyrir þá sem vilja sjá meistarana spila. Að lokum þá bætist 100 krónur í verðlaun eins og venjulega fyrir hvern þátttakanda. Farið er inn á „pletlow“ í Starcraft klukkan 17 og fyrir þá sem eru…
Ný hetja í leiknum League of Legends hefur litið dagsins ljós, en það er galdrakonan Lulu. Gefið hefur verið út myndband sem sýnir hvernig hin óútreiknanlega Lulu er teiknuð: Heimild: leagueoflegends.com
Í dag var myndbandi af Counter Strike 1.6 spilaranum Grjonehh uploadað inn á youtube.com af honum deronmvm og er það sett þannig upp að Grjonehh er sakaður um að svindla í leiknum. Dæmi nú hver fyrir sig: Fylgstu með eSports.is á facebook hér.
Samtökin Fnatic hefur sett af stað auglýsingaherferð og ætla að gefa fjölmarga vinninga, en tilefnið er að samtökin hafa náð 100 þúsund aðdáendur á facebook síðu þeirra og þegar þessi frétt er skrifuð þá eru aðdáendurnir komnir í 158.980. Það ætti eflaust ekki hafa farið framhjá neinum í leikjasamfélaginu að nú eru vinningsglaðir einstaklingar spamma spjallsvæði, facebook síður víðsvegar um veraldarvefinn og hvetja notendur að smella á sína Fnatic vefslóð. Sumir stjórnendur þessara síðna taka hart á þessu og vilja ekki sjá þetta spam, líkt og Css.is á Faceook gerir, en þar birtist eftirfarandi tilkynning: „Ekki fleiri „Fnatic 100k Fan…
Eins og við greindum frá hér um daginn, þá er nýr Battlefield 3 að patch á leiðinni og eins nýr DLC (Close Quarters) sem kemur í júní og nú er kominn myndbandsbrot sem sýnir Close Quarters DLC pakkann, en það var notandinn HoBKa- sem vakti athygli á myndbandinu á BF spjallinu.
Biggzterinn var ekki lengi að setja af stað nýtt online mót, nýbúinn með eitt mót og annað komið í gang. Skráning er hafin og hvetjum við öll lið að skrá sig sem fyrst. Allar nánari upplýsingar um mótið hér.
Counter Strike 1.6 online mótið hefur tekið að enda og sigruðu dbsc mótið eftir harða baráttu í úrslitaleik við o.O. Tekið var BO3 í úrslitunum og varð nuke fyrsta mappið sem keppt var í og sigruðu dbsc það með 16 gegn 11. Því næst var tekið dust2 en þar sigruðu o.O með öruggum sigri 16 gegn 8. Síðasta mappið og úrslitaleikurinn var í mappinu inferno og var þar hörkuleikur þar í gangi og sigruðu dbsc með 19 – 17 eftir framlengingu. Það var admin meistarinn Biggzterinn sem greindi frá og hefur hug á því að halda annað mót ef áhugi…
