Author: Chef-Jack

Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

Tim Sweeney, forstjóri Epic Games, hefur upplýst að fyrirtækið hafi fjárfest yfir 1 milljarð Bandaríkjadala í Epic Games Store (EGS) fram að þessu.  Þessi fjárfesting felur í sér þróun verslunarinnar og lögfræðileg átök við Apple og Google vegna stefnu þeirra um 30% þóknun og lokaðra kerfa fyrir appdreifingu á iOS og Android tækjum, að því er fram kemur í tilkynningu frá Epic Games. Hann leggur áherslu á að fyrirtækið sé staðráðið í að halda áfram þessari baráttu og fjárfesta í framtíð fyrirtækisins, bæði sem leikjaframleiðandi og til að skapa betra tækifæri fyrir alla þróunaraðila. Þrátt fyrir að hafa náð ákveðnum…

Lesa meira

Nýlega var tilkynnt að nýjasta kynningarmyndbandið fyrir „Ninja Gaiden 2 Black“ á Xbox hefur verið fjarlægt vegna þess að það innihélt efni sem var talið of gróft. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem slíkt gerist; árið 2008 krafðist ESRB að kynningarmyndband fyrir „Ninja Gaiden II“ yrði fjarlægt af svipuðum ástæðum. „Ninja Gaiden II“ var upphaflega gefin út árið 2008 og hlaut þá 18 ára aldurstakmark frá BBFC vegna mikils ofbeldis og blóðs. Í nýjustu útgáfunni, „Ninja Gaiden 2 Black“, hefur verið reynt að ná jafnvægi milli þess að viðhalda upprunalegu leikjaupplifuninni og að draga úr ofbeldisfullu efni til að…

Lesa meira

Áttunda online mót Íslenska PlayerUnknown’s Battlegrounds (PUBG) deildarinnar fór fram í gærkvöldi og var fullbókað þar sem 18 lið voru skráð í keppnina. Mótið hefur fengið mjög góðar viðtökur og var búið að myndast biðlisti á mótið. Öll liðin í mótinu PNGR sigraði með yfirburðum Enn og aftur sigruðu PNGR í mótinu og það með yfirburðum eða 114 stig, í öðru sæti var Finix Diff með 65 stig og í þriðja sæti Hot Drop með 54 stig. PNGR  Jengah  maNiiic  demaNtur  iamsyntex Finix Diff   Noraldinho  Asgeir_Kolbeins  Simmivalur03  DummDumm Hot Drop   tveirmetrar  Thorgeir  TakakoChigusa13  iSheep8 Eftirfarandi kort voru spiluð:…

Lesa meira

Leikurinn Helldivers 2 er nú loksins aðgengilegur á ný á Steam, en leikurinn var áður fjarlægður vegna deilna um tengingu við PlayStation Network (PSN) reikninga. Í apríl 2024 tilkynnti Sony að tenging við PSN yrði skylda fyrir PC útgáfu leiksins, sem leiddi til mikillar gagnrýni frá leikmönnum, sérstaklega í löndum þar sem PSN er ekki í boði. Þetta leiddi til þess að leikurinn var fjarlægður úr sölu í yfir 170 löndum. Greint hefur verið frá því að leikurinn sé aftur fáanlegur á Steam, þar á meðal: Arúba Álandseyjar Bermúda Færeyjar Grænland Jersey Makaó Nýja-Kaledónía Réunion Sankti Helena Þetta kemur fram…

Lesa meira

DOOM: The Dark Ages er væntanlegur tölvuleikur frá id Software og Bethesda Softworks, sem kemur út 15. maí 2025 fyrir PlayStation 5, Windows PC og Xbox Series X/S. Leikurinn er forsaga DOOM (2016) og fylgir uppruna aðalsöguhetjunnar, Doom Slayer, í baráttu gegn illum öflum. Í stað hraðrar og fimlegrar spilunar fyrri leikja, leggur þessi leikur áherslu á þyngri og stefnumótandi bardaga, þar sem leikmenn geta notað ný vopn eins og Shield Saw og Skull Crusher. Einnig verður hægt að stýra stórum vélmennum og dreka í ákveðnum köflum leiksins. DOOM: The Dark Ages einblínir á single player með aukinni áherslu á…

Lesa meira

Það er klárlega spennandi tímar framundan í íslenska PUBG samfélaginu. RÍSÍ (Rafíþróttasamband Íslands) hefur mikinn áhuga á að gera deildinni betri skil á komandi misserum. Í því felst meðal annars að koma deildinni fyrir í sjónvarpi og bæta “framleiðsluna” enn meira. Áætlað er að slíkar útsendingar hefjist með haustinu. Samhliða því verður farið í það að skrifa mótsreglur og gefa út skýrt mótafyrirkomulag. „Nú þegar eru komnar fram hugmyndir af slíku fyrirkomulagi en ekkert fast í hendi“. Segir Arnar Logi aka Alb_McO einn af stjórnendum í tilkynningu. Það er fyrirséð að það muni vanta fleiri aðila til að lýsa, observa…

Lesa meira

Online mót Íslenska PlayerUnknown’s Battlegrounds (PUBG) deildarinnar fór fram í gærkvöldi. „Okkur langar að þakka ykkur fyrir móttökurnar og viðbrögðunum fyrir því sem við höfum reynt að gera og til að segja ykkur þá hefur þetta farið fram úr okkar björtustu vonum.“ Sagði namano_10 einn af stjórnendum mótsins í samtali við esports.is um aðsóknina í mótinu. Fullbókað hefur verið á öll mótin sem haldin hafa verið á þriggja vikna fresti, en þetta er í sjöunda mótið sem fram fór í gærkvöldi. Það var KNGR kom, sá og sigraði í mótinu með 99 stig. Þar næst Team Iceland með 81 stig…

Lesa meira

Sveinn Aðalsteinn, Daníel Rósinkrans og Bjarki Þór hjá Nörd Norðursins fara yfir allt það helsta úr heimi tölvuleikja í 54. þætti Leikjavarpsins. Rætt er um hápunkta frá The Game Awards 2024 þar sem farið er yfir hvaða leikir unnu í stóru verðlaunaflokkunum og síðast en ekki síst hvaða nýju leikir voru kynntir á verðlaunahátíðinni, þar má meðal annars nefna nýjan The Witcher leik! Sveinn rýnir í Indiana Jones and the Great Circle sem er nýr Indiana Jones hasar- og ævintýraleikur þar sem þú spilar sem Indiana Jones í fyrstu persónu, hvernig ætli það sé að virka? Bjarki segir frá Balatro,…

Lesa meira