Cobblemon ISL samfélagið heldur sitt fyrsta páskamót sunnudaginn 5. apríl klukkan 21:00 og er ljóst að um spennandi viðburð er að ræða fyrir áhugafólk um Pokémon og Cobblemon.
Mótið er opið öllum og verða engar takmarkanir á vali Pokémon, en öll Pokémon eru leyfileg í keppninni. Það opnar á meira svigrúm fyrir keppendur til að nýta sínar sterkustu Pokémon og prófa fjölbreyttar aðferðir.
Í verðlaun verður veglegur vinningur, þar sem keppendur fá tækifæri á svokölluðu „spinning wheel“ þar sem hægt verður að vinna Legendary Pokémon á level 100.
Nánari upplýsingar um mótið og skráningu má finna á Discord Cobblemon ISL samfélagsins.
Tengt efni:
Íslenskur Cobblemon server opnaður fyrir Minecraft aðdáendur



