Tölvuleikjaútgefandinn Silver Lining Interactive hefur tilkynnt samstarf við þróunarteymið Psychic Software um að færa gotneska leikinn The Necromancer’s Tale á console leikjatölvur. Leikurinn, sem kom upphaflega út á PC, er væntanlegur á PlayStation 5, Xbox Series X/S og Nintendo Switch 2.
Leikurinn hefur vakið athygli fyrir dökka og sögudrifna nálgun þar sem ákvarðanir leikmanna hafa bein áhrif á framvindu sögunnar. Nú þegar er hægt að setja leikinn á óskalista á PlayStation 5 og Xbox Series X/S, en skráning fyrir Nintendo Switch 2 verður tilkynnnt síðar.
Í The Necromancer’s Tale stíga leikmenn í spor aðalsmanns á 18. öld sem dregst inn í heim svartagaldurs og uppvakninga. Þar þarf hann að halda athöfnum sínum leyndum á sama tíma og hann beitir bæði diplómatíu, hótunum og jafnvel fjárkúgun til að styrkja stöðu sína. Samhliða því tekst hann á við sífellt hættulegri galdra og andlegt hnignunarferli sem fylgir notkun þeirra.
Heimurinn sem leikurinn gerist í er byggður á sögu þar sem pólitískar fléttur, bandalög og svik eru í forgrunni. Samræður og val leikmannsins móta söguna í hverju skrefi, á meðan umfangsmikil galdrabók opnar nýjar og sífellt myrkari helgisiði.
Bardagar fara fram í taktískum átökum þar sem leikmaðurinn getur kallað til liðs við sig uppvakninga.
Myndir: aðsendar







