
Draumabílar og Rafíþróttasamband Íslands (RÍSÍ) hafa endurnýjað samstarf sitt um stuðning við íslensku Counter-Strike senuna.
Draumabílar hafa stutt við íslenskar rafíþróttir undanfarin ár og halda nú áfram samstarfi sínu við RÍSÍ. Tenging fyrirtækisins við Counter-Strike er sterk, en eigendur Draumabíla eru sjálfir Counter-Strike spilarar og virkir þátttakendur í samfélaginu.
Mikil gróska hefur verið í Counter-Strike á Íslandi undanfarin ár og fjöldi leikmanna og liða tekur þátt í skipulögðu keppnisstarfi. Stuðningur Draumabíla mun nýtast til áframhaldandi uppbyggingar á keppnisumhverfinu og til að skapa fleiri tækifæri fyrir íslenska spilara.
Jökull Jóhannsson, framkvæmdastjóri Rafíþróttasambands Íslands, segir áframhaldandi samstarf sérstaklega ánægjulegt:
„Við erum hæstánægð með að halda áfram samstarfinu við Draumabíla. Það hefur verið mikil gróska í íslensku Counter-Strike senunni og það er sérstaklega gaman að fá stuðning frá fyrirtæki þar sem eigendurnir eru sjálfir Counter-Strike spilarar og hluti af samfélaginu.
Þeir þekkja senuna, hafa áhuga á henni og vilja taka þátt í að byggja hana áfram upp.“
Mynd: Rafíþróttasamband Íslands



