Close Menu
    Nýjar fréttir

    Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar

    23.06.2026

    Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku

    18.06.2026

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026

    Leikjarinn leggur Twitch á hilluna eftir 15 ár

    14.06.2026
    1 2 3 … 351 Next
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    esports.is
    • Forsíða
    • Tölvur og leikir
      • Íslenskt efni
      • Rafíþróttir
      • Mót framundan
      • Væntanlegt
      • Nintendo
      • PC leikir
      • Playstation
      • Xbox
    • Leikjarýni
      1. Leikjarýni
      Featured
      90

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      By Chef-Jack12.08.2025
      Recent
      9.0

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      12.08.2025
      7.0

      Leikjarýni: RC-leikurinn Recharge kemur á óvart

      07.08.2025
      5.0

      Leikjarýni: Tónlistin heillar, en leikurinn sjálfur nær ekki sömu hæðum – þarfnast enn talsverðrar yfirferðar

      30.06.2025
    • Auglýsa?
    • Um okkur
      • Hafðu samband
      • Auglýsa?
      • Fréttabréf
      • Um vefinn
      • Íslenskar Fb grúppur
    • Klönin
      • Klön yfirlit
      • Dusty
      • Oldies Samsteypan
    • is
      • is
      • en
    esports.is
    Home»Rafíþróttir - Lan-, online mót»DUSTY óstöðvandi í Marvel Rivals S2 og lyftir bikarnum eftir 4–0 úrslitasigur
    DUSTY óstöðvandi í Marvel Rivals S2 og lyftir bikarnum eftir 4–0 úrslitasigur
    DUSTY með bikarana sína. Á myndinni má sjá leikmennina í þessari röð frá vinstri: Orion, Milkboy, ILO, cmd, 424 og Krizzi. Sasa var ekki á staðnum og er því eini liðsfélagi DUSTY sem ekki er á myndinni.
    Rafíþróttir - Lan-, online mót

    DUSTY óstöðvandi í Marvel Rivals S2 og lyftir bikarnum eftir 4–0 úrslitasigur

    By Chef-Jack18.11.2025Updated:18.11.20254 Mins Read
    Share
    Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    DUSTY óstöðvandi í Marvel Rivals S2 og lyftir bikarnum eftir 4–0 úrslitasigur
    DUSTY með bikarana sína. Á myndinni má sjá leikmennina í þessari röð frá vinstri: Orion, Milkboy, ILO, cmd, 424 og Krizzi. Sasa var ekki á staðnum og er því eini liðsfélagi DUSTY sem ekki er á myndinni.

    Keppnistímabil í Marvel Rivals lauk á glæsilegan hátt 8. nóvember þegar DUSTY tryggði sér öruggan 4–0 sigur á S.C.O í úrslitaleik S2 mótsins. Keppnin hófst 13. september og var leikin í samstarfi við Rafíþróttasamband Íslands með reglulegum útsendingum á Sjónvarpi Símans annan hvern laugardag.

    Eyrún Elíasdóttir úr mótstjórn Almenna Overwatch/Marvel Rivals segir að tímabilið hafi verið öflugt, skipulagið þétt og samfélagið virkilega lifandi.

    „Það var gaman að fylgjast með liðunum þróast á tímabilinu. Spilararnir þekkja hver annan frá mörgum árum í Overwatch og það skilar sér í ástríðu og fagmennsku í Marvel Rivals,“

    segir hún.

    Fimm lið í harðri baráttu

    Alls tóku fimm lið þátt í S2. Hér eru liðin og leikmenn þeirra, með fyrirliða fremst:

    DUSTY
    cmd, ILO, 424, Milkboy, Krizzi, Orion, sasa

    S.C.O
    Thunderthor, Frankyboxing, Anduriel, Gracefulidiot, dukkan, sector, Reynzeh, Denzo_, KiwiBirdICE

    Grindavík
    Keli_Kaldi, Giljagaur, Snella, Hreyrim, Endertad, Maggú, Stúfur

    Jötunn
    Rufalo, Fez05ow, Run5i, Ziltus, Venusat, MundiLundi, Goggis, Primal Complex

    Zvalarnir
    FunkyMicrowave, PatrekurMáni, Bogahestur, BigMonki, Woli, Ryportate, xTrolli, Eplasafi02, Ozii

    DUSTY óstöðvandi í Marvel Rivals S2 og lyftir bikarnum eftir 4–0 úrslitasigur
    Þorgerður Erla Andrésdóttir, betur þekkt sem MaysileeFox, hannaði þetta plakat fyrir úrslitakvöld Marvel Rivals S2.

    DUSTY enn með algjöra yfirburði

    DUSTY hefur byggt upp orðspor sem sterkt Marvel Rivals lið í Evrópu.  Liðið tapaði ekki einu einasta borði á öllu mótinu, rétt eins og í S1 fyrr á árinu. S.C.O, sem einnig spilaði afar vel, endaði í öðru sæti á báðum tímabilum.

    Eyrún segir að þetta form sé ekki óvænt.

    „Það eru alltaf DUSTY og S.C.O sem festast í toppsætunum. Þessi lið eru gríðarlega vel samstillt og spila á mjög háu tempói.“

    DUSTY hefur jafnframt keppt á alþjóðlegum mótum, þar á meðal Marvel Rivals Invitational og Marvel Rivals Ignite sem bæði eru ætluð helstu toppliðum Evrópu. Liðið hefur náð góðum árangri í Marvel Rivals Championship mótaröðinni, þar sem það hefur m.a. landað 3. sæti í MRC Beta, 8. sæti í Season 0 og verið í hópi 32 bestu í Season 1.

    Þróun mótsins og reglur

    S2 mótið hófst með riðlakeppni þar sem öll lið léku á móti hvert öðru í fimm umferðum. Eftir það tók við tvöfaldur útsláttur þar sem efstu fjögur liðin börðust áfram í gegnum sigur- og tapflokk.

    „Við vildum tryggja að keppnin yrði bæði sanngjörn og spennandi. Tvöfaldur útsláttur gerir það að verkum að lið fá annað tækifæri og það skilar sér í meiri dramatík og betri leikjum,“

    segir Eyrún.

    Í Marvel Rivals er keppt í borðum þar sem hver sigur gefur eitt stig. Leikið er best af fimm, en best af sjö í úrslitum. Ef lið tapar borði fær það að velja næsta borð, en DUSTY komst aldrei í þá stöðu því enginn náði að taka af þeim eitt einasta borð.

    DUSTY óstöðvandi í Marvel Rivals S2 og lyftir bikarnum eftir 4–0 úrslitasigur
    Lýsendur mótsins, þeir Rúnar og Óli (Run5i og Rufalo), leikmenn Jötuns.

    Lýsendur mótsins voru Rúnar og Óli, betur þekktir sem Run5i og Rufalo, leikmenn úr Jötni.

    Peningaverðlaun og framvinda

    Heildarverðlaunafé mótsins var 156.000 krónur, þar af fékk sigurliðið DUSTY 78.000 krónur. Öll liðin fengu þó sinn skerf.

    Hægt er að skoða rétta framvindu mótsins og öll úrslit á Challonge hér.

    Samheldið samfélag frá 2020

    Stór hluti keppendanna hefur áður tekið þátt í Overwatch mótum Almenna, sem hófust haustið 2020. Samfélagið hefur því verið að byggjast upp í áraraðir og er mjög tengt.

    „Áhuginn er núna mjög sterkur í Marvel Rivals, en við útilokum ekki að halda áfram í Overwatch á næsta ári ef það verður eftirspurn,“

    segir Eyrún.

    Næsta keppnistímabil hefst 31. janúar. Mótstjórnin mun síðar tilkynna hvort keppt verði í Marvel Rivals, Overwatch eða jafnvel báðum.

    Myndir: Eyrún Elíasdóttir

    424 Anduriel BigMonki Bogahestur cmd Denzo_ dukkan Dusty Endertad Eplasafi02 Eyrún Elíasdóttir Fez05ow Frankyboxing FunkyMicrowave Giljagaur Goggis Gracefulidiot Grindavík Hreyrim ILO Íslenskt efni Jötunn Keli_Kaldi KiwiBirdICE Krizzi Maggú Marvel Rivals Milkboy MundiLundi Orion Overwatch Ozii PatrekurMáni Primal Complex Rafíþróttasamband Íslands Reynzeh Rufalo Run5i Ryportate S.C.O sasa sector Snella Stúfur Thunderthor Venusat Woli xTrolli Ziltus Zvalarnir
    Share. Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Chef-Jack

    Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

    Tengdar færslur

    Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar

    23.06.2026

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026

    Dusty tryggði sér Stórmeistaratitil Ljósleiðarans

    29.05.2026

    Finnsi rafíþróttamaður ársins

    27.05.2026
    Við mælum með

    Þorsteinn „TH0R“ Friðfinnsson mætir á PGL Astana

    04.04.2026

    Íslenskur Cobblemon server opnaður fyrir Minecraft aðdáendur

    28.03.2026

    Pixelwear.is tengir saman nörda- og leikjasamfélög landsins

    27.03.2026

    Íslendingurinn Torfi Frans: „Minecraft World er mikilvægt skref“

    22.03.2026
    1 2 3 … 10 Next
    Mest lesið
    • Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar
      Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar
      23.06.2026
    Leikjarýni í vinnslu

    12. ágúst 2025
    Nýjasta leikjarýnin komin út: Echoes of the End

    7. ágúst 2025
    Nýleg leikjarýni: Recharge.

    30. júní 2025
    Nýleg leikjarýni: The Book of Aaru.

    Fleiri leikjarýni hér.

    esports.is
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    • Forsíða
    • Auglýsa
    • Tölvuleikir
    • Um vefinn

    Type above and press Enter to search. Press Esc to cancel.