
Mynd: suzukacircuit.jp
Formúlu 4 deildin í hermikappakstri fer af stað á ný hér á landi þann 21. maí, þegar keppt verður í herminum iRacing. Um er að ræða annað skiptið sem deildin er haldin á Íslandi og ljóst að áhugi á hermikappakstri heldur áfram að vaxa.
Mótið er skipulagt af Aðalbón Racing liðinu og verður streymt á YouTube rás GT Akademíunnar, þar sem keppninni verður lýst á íslensku. Keppendur taka þátt víðs vegar að, flestir úr heimahermum en einnig gefst kostur á að mæta í keppnissal GT Akademíunnar.
Keppt verður bæði í einstaklings- og liðakeppni og eru alls sex umferðir á dagskrá. Fyrsta umferðin fer fram á hinni þekktu Suzuka Circuit braut í Japan og hefst keppni klukkan 20:00.
Nánari upplýsingar um mótið og fyrirkomulag þess má nálgast á heimasíðu keppninnar.



