Japanska fyrirtækið Top Hat Studios hefur gefið út skotleikinn Silly Polly Beast, eftir einyrkjann Andrei Chernyshov. Leikurinn kom út á Steam, PlayStation 4 og 5, auk Xbox Series X|S og var aðgengilegur í dag frá klukkan 15:00 að íslenskum tíma.
„Silly Polly. Stupid, silly Polly, you’ve ruined everything. Want a cracker?“ Með þessum kuldalegu orðum hefst óhugnanlegt ferðalag þar sem raunveruleiki og martröð renna saman.
Í Silly Polly Beast fylgja spilarar hinni óheppnu Polly, sem hefur sloppið úr draugalegu munaðarleysingjahæli og reikar nú niður í sjálfan undirheiminn. Þar þarf hún að takast á við ógnvekjandi verur, sársaukafullar minningar. Leikurinn sameinar árásargjarna og hraða bardaga, súrrealíska frásögn, þar sem hver ákvörðun getur haft keðjuverkandi afleiðingar.
Silly Polly Beast blandar saman ólíkum leikstílum með óvenjulegum hætti. Spilarar skiptast á að berjast í top-down bardögum, leysa gátur og rata í gegnum dimma undirheima. Á leiðinni lærir Polly að beita töfrum, nýta vopn og með ótrúlegum hætti, skauta í gegnum hyldýpið á hjólabretti sínu.
Heimur leiksins er þéttur af undarlegum verum, sem geta bæði reynst hjálparhellur og hættulegar. Leikurinn kemur út samtímis um allan heim, með stuðningi við ensku, japönsku, frönsku, þýsku, ítölsku, spænsku, rússnesku, úkraínsku og bæði forn kínversku. Verðið á Steam er 19,99 USD (um 2.800 kr.), og í boði verður 15% afsláttur fyrstu tvær vikurnar eftir útgáfu.
Myndir: Steam







