Strákarnir úr GAMETÍVÍ stilla sér upp aftur í kvöld og taka höndum saman í fyrsta sinn í nýjustu útgáfu Call of Duty seríunnar, Black Ops 7. Þeir ætla að skyggnast inn í leikinn, prófa nýjar aðferðir og reyna að finna taktík sem skilar þeim þremur sigrum, eins og þeir orðuðu það sjálfir, auðvitað með fullu sjálfstrausti.
Bein útsending hefst klukkan 20.00 á www.twitch.tv/gametiviis, þar sem áhorfendur geta fylgst með fyrstu skrefunum, upplifað stemmninguna, keppnisskapið og óvæntu augnablikin á meðan þeir streyma. Þetta stefnir í kvöld þar sem fjör, samkeppni og góðar uppákomur halda áhorfendum á tánum.




