
Mynd: Bridgesambands Íslands
Íslenska landsliðið í flokki heldri spilara vann gullið um síðustu helgi í tveggja daga Norðurlandamóti á Internetinu í sveitakeppni.
Árangur liðsins er sérlega glæsilegur því miklar briddskempur skipuðu að jafnaði lið hinna Norðurlandanna.
Fyrir Íslands hönd spiluðu Þorlákur Jónsson, Einar Gudjohnsen Ragnar Magnússon, Páll Valdimarsson, Sævar Þorbjörnsson, Guðmundur Sv. Hermannsson og Björn Eysteinssson.
Einar Guðjohnsen segir um árangurinn:
„Það munar öllu að vera í liði með geðgóðum spilafélögum sem taka spilin nógu alvarlega, en ekki of alvarlega! Liðið spilaði vel í heild, sérstaklega í sögnum.“
Geta má þess að margir tugir impa féllu Íslendinganna megin í vel melduðum slemmuspilum „seníoranna“.
Á sama tíma náði landslið Íslendinga kynjablandað bronsinu á NM í netbridds.
Mjög góð helgi að baki hjá öflugum íslenskum briddsspilunum sem búa sig nú undir eitt skemmtilegasta mót ársins, sem hefst næsta föstudagskvöld í Fjölbrautaskólanum Ármúla. Klukkan 18 á föstudag hefst undankeppni Íslandsmótsins í sveitakeppni og stendur fram á sunnudag. Mótið er opið og eru allir spilarar velkomnir.



