
Nýverið fór fram Rally keppni í aksturshermi þar sem keppt var á Djúpavatnsleið, en þar með hefur fyrsta íslenska sérleiðin í Rally formlega ratað inn í hermi. Verkefnið er á vegum GT akademíunnar sem hefur undanfarin misseri unnið að þróun leiðarinnar í samstarfi við fjölda öflugra aðila.
Áhugi var mikill og yfir fjörutíu keppendur skráðu sig til leiks. Stemningin var í takt við það sem gerist og gengur í hefðbundnu rallýi, spennan þétt og hver sekúnda taldi.

Það var Gunnar Karl Jóhannesson sem reyndist hlutskarpastur að lokum og hreppti titilinn Djúpavatnsmeistari 2026 eftir öruggan og fumlausan akstur.
Með tilkomu Djúpavatnsleiðar í hermi hefur íslenskt rallý tekið nýtt skref inn í stafrænan heim, þar sem ökumenn geta æft sig á innlendum leiðum við raunhæfar aðstæður allt árið um kring.

GT akademían er staðsett við Faxatorg, Faxafen 10 í Reykjavík og hefur fest sig í sessi sem miðstöð akstursíþrótta í sýndarheimi hér á landi.
Myndir: Facebook / GT Akademían


