Skráning er hafin fyrir Haustmót Kids Coolshop sem fram fer í Arena gaming dagana 20. til 21. september. Mótið er ætlað iðkendum aðildarfélaga Rafíþróttasambands Íslands og er von á allt að 150 keppendum víðs vegar af landinu.
Keppt verður í vinsælum leikjum á borð við Minecraft, Valorant og Fortnite þar sem ungir spilafélagar fá tækifæri til að sýna hæfileika sína á sviði rafíþrótta.
Athugið að þátttaka er eingöngu fyrir aðildarfélög RÍSÍ. Nánari upplýsingar er að finna í gegnum tölvupóstfang sambandsins: [email protected]




