HLTV.org, stærsta tölfræðivefsíða Counter-Strike heims, hefur uppfært reikniformúlu sína fyrir svokallaða Rating 3.0 kerfið sem metur frammistöðu leikmanna á tölfræðilegan hátt.
HLTV er grunnurinn að flestum umfjöllunum og umræðum um leikmannagæði í CS2-heiminum, og rating-tölurnar hafa lengi verið viðmiðunarmörk í mælingum á árangri atvinnumanna.
Uppfærslan, sem HLTV kallar „targeted recalibration“, snýst í grunninn um að færa vogarskálarnar aftur í átt að tölfræðinni sjálfri. Kills fá aukið vægi í heildarformúlunni, á meðan áhrif Round Swing eru minnkuð.
Það er bein leiðrétting í kjölfar gagnrýni samfélagsins, þar sem margir töldu að nýja formúlan hefði ofmetið samhengi einstakra atvika á kostnað tölfræðilegs árangurs leikmannsins.
Rating 3.0 imo is a complete garbage. Just sad attempts to fix something that’s always going to be subjective.
Thread 👇
— Abdul Gasanov (@degsterof) October 15, 2025
Síðan Rating 3.0 var kynnt hefur samfélagið ekki verið á einu máli. Margir leikmenn og aðdáendur sögðu erfitt að tengja saman stigatöfluna og lokaeinkunnina sem HLTV sýndi. Með þessari uppfærslu er gripið beint inn í kjarnann á þeirri gagnrýni.
Round Swing heldur áfram að meta stöðu leikmannsins í hverri lotu, en áhrif þess eru dregin til baka innan formúlunnar. Jafnframt hefur vægi „finishing blow“ verið minnkað, en þáttur eins og sameiginlegur skaði, trades og flash-assists fær aukið vægi.
I have a feeling that the public sentiment regarding Rating which used to roughly equate to proficiency in a game will start to sour. Rating 2.0 and 2.1 matched closely enough to what other box score stats (Kills, ADR) read AND what the eye test showed that it was pretty easy to…
— Mauisnake (@Mauisnake) August 24, 2025
Á sama tíma hefur undirflokkur árangursins verið styrktur, þannig að kerfið hallar nú aftur í átt að því sem HLTV notaði áður, þar sem frammistaða á borðinu talar sínu máli.
Samkvæmt HLTV ætti þessi breyting að þýða að leikmenn sem sýna stöðugan árangur og mikla framleiðni, fá nú áreiðanlegri einkunnir, á meðan leikmenn sem lifa á clutchum, þannig að stakar lotur hafa ekki lengur jafn mikið vægi í útreikningnum.
HLTV tekur þó fram að heildareinkunnir leikmanna hafi ekki breyst verulega, breytingin snertir aðallega einkunnir á einstökum kortum, sem jafnast út yfir lengri tíma.
Auk þess fylgja smærri betrumbætur, eins og endurbætt eco-logic og nýr valmöguleiki á stigatöflunni sem sýnir eco-adjusted K-D og ADR, sem gæti orðið nýtt nördalegt uppáhald þeirra sem kafa djúpt í tölfræðina.
HLTV heldur þannig áfram að stilla fínustu strengina í tölfræðivél Counter-Strike heimsins, í eilífri leit að fullkominni jöfnun milli rauntölfræðilegs skilnings og tilfinningarinnar fyrir því hver átti raunverulega leikinn.
Með fréttatilkynningu HLTV fylgir myndband sem sýnir hversu langt clutch-kröfurnar hafa verið teygðar, þar fer Danil ‘donk’ Kryshkovets á kostum með hreint út sagt ótrúlegt ninja defuse.
Myndir: hltv.org





