Tölvuleikurinn Minecraft er á leiðinni í nýjan og óvæntan farveg þegar fyrsta fullmótaða skemmtigarðssvæði heimsins, byggt á leiknum, opnar dyr sínar árið 2027. Verkefnið ber nafnið Minecraft World og verður staðsett í Chessington World of Adventures.
Að baki verkefninu standa Merlin Entertainments og Mojang Studios, sem hafa unnið náið saman að þróun svæðisins. Um er að ræða fjárfestingu upp á um 50 milljónir punda, jafnvirði um 8,5 til 9 milljarða íslenskra króna, og er markmiðið að færa vinsælasta tölvuleik allra tíma úr stafrænum heimi yfir í raunveruleikann.
Minecraft World mun byggja á þekktustu þáttum leiksins, þar á meðal verum og hlutum sem leikmenn þekkja vel. Gestir geta búist við fjölbreyttum afþreyingarmöguleikum, þar á meðal nýjum rússíbana sem sagður er sá fyrsti sinnar tegundar í heiminum með Minecraft-þema. Þá verða einnig gagnvirk ævintýri, leiksvæði byggð úr blokkum í anda leiksins, auk verslana og veitingastaða í sama stíl.
Samkvæmt Angelu Jobson hjá Merlin Entertainments er markmiðið að skapa upplifun þar sem fjölskyldur og vinir geta
„leikið sér, kannað og skapað saman á epískan hátt“.
Hún leggur áherslu á að unnið sé náið með Mojang Studios til að tryggja að heimurinn verði trúverðugur og í takt við væntingar aðdáenda.
Torfi Frans: Minecraft stækkar

Mynd: úr einkasafni
Í tilkynningu frá Merlin Entertainments er haft eftir Íslendingnum Torfa Frans Ólafssyni, sem starfar við þróun og mótun Minecraft hjá Mojang Studios, að verkefnið marki tímamót í þróun Minecraft-heimsins.
„Minecraft World er mikilvægt skref í áframhaldandi vegferð okkar við að stækka Minecraft-heimsins.
Við erum afar spennt fyrir samstarfinu við Merlin Entertainments, þar sem markmiðið er að skapa stað þar sem gestir geta bókstaflega stigið inn í Overworld-heiminn og upplifað eigin ævintýri með fjölskyldu og vinum.
Starfsfólkið hjá Merlin Entertainments og Mojang hafa lagt hart að sér við að móta upplifun sem er bæði yfirgripsmikil, trúverðug og aðgengileg, og við hlökkum til að sjá samfélagið okkar upplifa þetta á eigin skinni,“
segir Torfi.
Garðurinn verður staðsettur í um 35 mínútna lestarferð frá London og er stefnt að opnun árið 2027.
Til gamans má geta að Torfi Frans Ólafsson er einn af framleiðendum Minecraft-myndarinnar sem kom út í fyrra. Hér að neðan má sjá viðtal við Torfa í fréttum Stöð 2.
Myndir: merlinentertainments.biz










