Á föstudaginn stóðu Íslandsstofa og IGI, í samstarfi við Sendiráð Íslands í London, fyrir samstarfsviðburði í London þar sem fulltrúum íslenskra tölvuleikjafyrirtækja gafst kostur á að kynna sig og tengjast breskum samstarfsaðilum, útgefendum og fjárfestum í greininni.
Sturla Sigurjónsson, sendiherra Íslands, flutti opnunarávarp og bauð gesti velkomna. Markmið viðburðarins var að styrkja tengsl og efla samstarf milli íslenskra og breskra aðila í tölvuleikjaiðnaðinum, með áherslu á tækifæri til útflutnings og nýrra samstarfsverkefna.
Með fylgja myndir sem sendiráð Íslands í London birti á Facebook-síðu sinni.







