
Mynd: BÞ
Mikill fjöldi briddspilara nýtti jólafríið í spilamennsku, enda styttist í Reykjavík Bridge Festival, stórmótið í Hörpu í lok þessa mánaðar. Vonandi taka sem flestir Íslendingar þátt en von er á mörgum af sterkustu spilurum heims.
Vel var mætt á jólamótin, sem fóru fram út um flestar koppagrundir.
Júlíus Sigurjónsson-Þorlákur Jónsson unnu mjög fjölmennt jólamót Bridgefélags Hafnarfjarðar, Ómar Olgeirsson-Stefán Jóhannsson unnu jólamót Bridgefélags Reykjavíkur, fyrir norðan hampaði Guðmundur H. Halldórsson og makker hans sigri á jólamóti Íslenskra verðbréfa og Bridgefélags Akureyrar og á Akranesi síðastliðinn laugardag fór fram Vesturlandsmót í sveitakeppni, opið öllum.
Sveit Málningar tók gullið, sveit Guðmundar Ólafsson silfur og sveit Kjöríss bronsið.
Suðurlandsmótið í sveitakeppni, öllum opið, fer fram á Selfossi um næstu helgi og félagastarf út um allt land er í nokkrum blóma, enda hetar vel að spula bridds í svartasta skammdeginu.
Þá er rétt að minna á að Úrvalsdeildin í bridds hefst í Sjónvarpi Símans í næsta mánuði eftir hlé um jólin en þar er spilað í beinni undir hatti rafíþrótta og hefur mótið slegið í gegn meðal áhorfenda.


