
Birkir Fannar, betur þekktur undir nafninu Leikjarinn á Twitch, hélt sitt síðasta streymi í gærkvöldi, laugardaginn 13. júní. Þar með lauk rúmlega fimmtán ára kafla í íslensku streymisamfélagi, en Birkir hefur verið í beinni útsendingu frá árinu 2011 og byggt upp dyggt samfélag í kringum efnið sitt.
Leikjarinn er með um 3.400 fylgjendur á Twitch og hefur um árabil verið þekktur fyrir afslappaðar útsendingar, fjölbreytt leikjaval og náið samband við áhorfendur sína.
Í kveðjufærslu rifjar Birkir upp tímabil þegar streymisferill hans virtist geta þróast í fulla atvinnu. Hann segir að Omeed Dariani, sem starfaði sem Senior Global Brand Manager fyrir EverQuest Next og EverQuest Landmark, hafi komið sér inn í hóp streymara sem unnu saman að kynningu leikjanna og uppbyggingu samfélags í kringum þá.
Á þeim tíma naut Leikjarinn reglulega stuðnings frá stærri streymurum og segir að áhorfendatölur hafi stundum náð allt að 700 manns. Á sama tíma vann hann í frystihúsi á Fáskrúðsfirði á daginn og streymdi leikjum á borð við EverQuest Landmark og Hearthstone á kvöldin.
Þrátt fyrir að hafa fengið tækifæri til að stækka enn frekar segir Birkir að hann hafi aldrei þorað að taka skrefið til fulls og gera streymið að atvinnu.
„En ég var hræddur við að taka næsta skref og líta á þetta sem vinnu,“
skrifar hann.
Síðar flutti hann á Djúpavog þar sem hann hélt áfram að streyma, þó áhorfendum færi smám saman fækkandi. Hann segir þó að fjöldi áhorfenda hafi aldrei verið aðalatriðið.
Það sem standi upp úr séu tengslin sem mynduðust í gegnum árin.
„Nánast aldrei sami leikurinn, en samt varð til samfélag af fólki sem mætti aftur og aftur til að spjalla, hlæja og hanga saman.“
Ástæða þess að Birkir ákveður nú að stíga til hliðar tengist fyrst og fremst fjölskylduaðstæðum. Annað barn þeirra hjóna er á leiðinni og á sama tíma hafi óvæntar aðstæður skapað óvissu um framtíðina, meðal annars varðandi mögulega flutninga.
Þótt hann kveðji Twitch í bili útilokar hann ekki endurkomu síðar. Þá bendir hann einnig á að Leikjarinn Podcast hafi nýlega lokið á jákvæðum nótum með síðasta þættinum.
Síðasta streymið var tileinkað leiknum Hades II. Birkir segir leikjaseríuna hafa hjálpað sér í gegnum erfiða tíma og því þyki sér við hæfi að ljúka þessum kafla með henni.
Að lokum þakkar hann áhorfendum fyrir stuðninginn í gegnum árin og segir að þó Leikjarinn hverfi af skjánum í bili sé ekki um endanleg kveðjustund að ræða.
„Ég mun auðvitað snúa aftur einn daginn. En þangað til ætla ég bara að teikna, mála og vera lélegur í skák.“
Myndir: Instagram / @leikjarinn





