Close Menu
    Nýjar fréttir

    Draumabílar styðja íslensku Counter-Strike senuna

    21.08.2026

    Fyrsta íslenska VRS mótið

    20.08.2026

    Liðsstjóramót í Apex Legends

    13.08.2026

    Frábær frammistaða Íslands í ALGS ENC 2026

    09.08.2026
    1 2 3 … 354 Next
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    esports.is
    • Forsíða
    • Tölvur og leikir
      • Íslenskt efni
      • Rafíþróttir
      • Mót framundan
      • Væntanlegt
      • Nintendo
      • PC leikir
      • Playstation
      • Xbox
    • Leikjarýni
      1. Leikjarýni
      Featured
      90

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      By Chef-Jack12.08.2025
      Recent
      9.0

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      12.08.2025
      7.0

      Leikjarýni: RC-leikurinn Recharge kemur á óvart

      07.08.2025
      5.0

      Leikjarýni: Tónlistin heillar, en leikurinn sjálfur nær ekki sömu hæðum – þarfnast enn talsverðrar yfirferðar

      30.06.2025
    • Auglýsa?
    • Um okkur
      • Hafðu samband
      • Auglýsa?
      • Fréttabréf
      • Um vefinn
      • Íslenskar Fb grúppur
    • Klönin
      • Klön yfirlit
      • Dusty
      • Oldies Samsteypan
    • is
      • is
      • en
    esports.is
    Home»Rafíþróttir - Lan-, online mót»Myndaveisla: Íþróttamálaráðherra veitir verðlaun á vel heppnuðu ungmennamóti
    Myndaveisla: Rafíþróttasamband Íslands stóð fyrir ungmennamóti, Inga Sæland afhenti verðlaun
    Rafíþróttir - Lan-, online mót

    Myndaveisla: Íþróttamálaráðherra veitir verðlaun á vel heppnuðu ungmennamóti

    By Chef-Jack28.01.2026Updated:29.01.20262 Mins Read
    Share
    Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link

    Myndaveisla: Rafíþróttasamband Íslands stóð fyrir ungmennamóti, Inga Sæland afhenti verðlaun

    Um helgina fór fram ungmennamót í Rafíþróttum þar sem tæplega 70 keppendur frá 8 aðildarfélögum tókust á í Fortnite og Minecraft. Mótið gekk vel og fékk mikið lof frá keppendum, þjálfurum og aðstandendum.

    Keppnin hófst á laugardeginum með Minecraft þrautakeppni, og þar á eftir var fyrri hluti í Fortnite einstaklings- og liðakeppni. Á sunnudeginum fór fram Minecraft hönnunarkeppni, en síðan var spilaður seinni hlutinn í einstaklings- og liðakeppni í Fortnite. Deginum lauk síðan með verðlaunaafhendingu, þar sem Íþróttamálaráðherra, Inga Sæland, afhendi sigurvegurum mótsins verðlaun.

    Myndaveisla: Rafíþróttasamband Íslands stóð fyrir ungmennamóti, Inga Sæland afhenti verðlaun
    Inga Sæland, íþróttamálaráðherra, og Jökull Jóhannsson, framkvæmdastjóri Rafíþróttasambands Íslands, ásamt hluta sigurvegara á ungmennamóti í rafíþróttum, þar sem keppt var í Fortnite og Minecraft.

    Að þessu sinni voru þátttakendur frá eftirfarandi aðildarfélögum RÍSÍ: HK, Breiðablik, Fylkir, FH, Ármann, Rafíþróttadeild Mosfellsbæjar, UMF Sindri og Rafíþróttaklúbburinn í Hveragerði. Iðkendur UMF Sindra tóku þátt rafrænt frá Höfn, en það var góð prufukeyrsla á svona fjar-þátttöku í ungmennamóti, sem skiptir miklu máli til að koma til móts við þær fjölmörgu rafíþróttadeildir og iðkendur á landsbyggðinni.

    Myndaveisla: Rafíþróttasamband Íslands stóð fyrir ungmennamóti, Inga Sæland afhenti verðlaun
    Skjáskot úr streymi
    Myndaveisla: Rafíþróttasamband Íslands stóð fyrir ungmennamóti, Inga Sæland afhenti verðlaun

    Jökull Jóhannsson, framkvæmdastjóri Rafíþróttasambands Íslands, segir stuðninginn við mótið skipta sköpum fyrir áframhaldandi uppbyggingu ungmennastarfs í rafíþróttum.

    „Fyrir hönd RÍSÍ og allra þeirra sem komu að mótinu vil ég þakka innilega fyrir þann stuðning sem veittur var. Hann gerir okkur kleift að halda þessi ungmennamót, sem eru gríðarlega mikilvægur þáttur í ungmennastarfi rafíþrótta hér á landi,“

    segir Jökull.

    Eftirfarandi ungmenna stóðu upp úr sem sigurvegarar á mótinu:

    Minecraft Þrautakeppni
    1. sæti: Kristinn Jónsson – Ármann

    Minecraft Byggingarkeppni
    1. sæti: Fróði Hákonarson – Breiðablik

    Fortnite Solo – 8-10 ára
    1. sæti: Hjálmar Sigurður Hauksson – FH
    2. sæti: Baldur Freyr Snorrason – FH
    3. sæti: Oddur Hersveinn – Ármann

    Fortnite Solo – 11-16 ára
    1. sæti: Brimir Leó Bjarnason- FH
    2. sæti: Þorlákur Gottskálk Guðfinnsson – FH
    3. sæti: Sigurjón Bjarni Óskarsson – Hveragerði

    Fortnite Duo (Liðakeppni) – Yngri Aldursflokkur 8-10 ára
    1. sæti: Kári Hrafn og Oddur Hersveinn – Ármann
    2. sæti: Baltasar Ingi Sigurðsson og Dalía Von Gunnarsdóttir – FH
    3. sæti: Kári Ragnarsson og Páll Eysteinn – FH

    Fortnite Duo (Liðakeppni) – Eldri Aldursflokkur 11-16 ára
    1. sæti: Þorlákur Gottskálk Guðfinnsson og Brimir Leó Bjarnason – FH
    2. sæti: Alexander Orri Eiríksson og Benedikt Nóel Benediktsson – FH
    3. sæti: Hilmar Bjarni Gunnarsson og Tómas Gíslason – Hveragerði

    Myndir: Rafíþróttasamband Íslands

    Fortnite Battle Royale Haustmót Kids Íslenskt efni Jökull „Kaldi“ Jóhannsson Kids Coolshop Minecraft Rafíþróttasamband Íslands Rafíþróttir
    Share. Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Chef-Jack

    Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

    Tengdar færslur

    Draumabílar styðja íslensku Counter-Strike senuna

    21.08.2026

    Fyrsta íslenska VRS mótið

    20.08.2026

    Liðsstjóramót í Apex Legends

    13.08.2026

    Frábær frammistaða Íslands í ALGS ENC 2026

    09.08.2026
    Við mælum með

    Frábær frammistaða Íslands í ALGS ENC 2026

    09.08.2026

    Dusty í baráttu um Esports World Cup

    07.08.2026

    Ísland keppir í Apex Nations Cup

    30.07.2026

    Ný rafíþróttaaðstaða á Húsavík

    30.07.2026
    1 2 3 … 11 Next
    Mest lesið
    • Draumabílar styðja íslensku Counter-Strike senuna
      Draumabílar styðja íslensku Counter-Strike senuna
      21.08.2026
    Leikjarýni í vinnslu

    12. ágúst 2025
    Nýjasta leikjarýnin komin út: Echoes of the End

    7. ágúst 2025
    Nýleg leikjarýni: Recharge.

    30. júní 2025
    Nýleg leikjarýni: The Book of Aaru.

    Fleiri leikjarýni hér.

    esports.is
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    • Forsíða
    • Auglýsa
    • Tölvuleikir
    • Um vefinn

    Type above and press Enter to search. Press Esc to cancel.