Eftir langan tíma í leynd og dulúð hefur íslenska leikjafyrirtækið Porcelain Fortress loks stigið fram og afhjúpað næsta kafla í sinni einkennilegu og kaldhæðnu sýn á lífið sjálft.
Leikurinn Walk of Life er kominn út í Early Access á Steam, og býður upp á hressan og háðslegan leik þar sem lífið sjálft verður að keppni, þar sem spilarar keppast um að finna sér vinnu, ljúka námi, borga leigu og halda haus, áður en allt fer í kaldakol.
Leikurinn er hannaður bæði fyrir þá sem vilja slást í för við vini í stofunni og þá sem kjósa að glíma við lífið (og leiguna) yfir internetið.
Erfingi No Time to Relax
Porcelain Fortress sló í gegn árið 2019 með leiknum No Time to Relax, sem seldist í yfir 350 þúsund eintökum og hefur verið þýddur á tíu tungumál, þar á meðal íslensku. Nýr leikur heldur áfram í sömu anda en með stærra umfang, nýja grafík og fjölbreyttari leikjahætti.
„Við lítum á Walk of Life sem eðlilegan erfingja No Time to Relax,“
segir þróunarteymið í tilkynningu.
„Við vildum byggja ofan á uppskrift sem virkaði, en líka losa okkur við gamla kóða sem var orðinn eins og súpa, sem var svo þykk að ómögulegt var að hræra í henni án þess að hún skvettist út um allt“
Hver ákvörðun í Walk of Life er eins og dominóspil, og þú veist aldrei hvaða kubbur fellur næstur. Spilarar ferðast um nýja borg, Calicornia, þar sem lífið sjálft er stærsta ævintýrið og stundum versti draumurinn. Þar bíða óvæntir atburðir um helgar, hungur sem gleymist að seðja og nám sem gæti skilað betri vinnu, ef stressið leggur þig ekki fyrst í rúst.
Þróunarteymið segir að nafnið hafi verið meðvitað val: Walk of Life er ekki einfaldur framhaldstitill, heldur nýtt ævintýri með eigin tón og stíl.
„Við tókum innblástur frá klassískum leikjum eins og Day of the Tentacle, sem var í raun framhald Maniac Mansion en hafði alveg nýja nálgun,“
segir teymið.
GamePlay
Hægt er að nálgast Walk of Life hér á Steam.
Myndir: Steam






