Oldies bootcamp

Oldies Samsteypan

Hvað er Oldies?

Oldies er stranglega „non-pro“ klan þar sem skemmtun er skilyrði. Kjaftbrúk, stælar og önnur leiðindi eru afþökkuð, þó heimsyfirráð og ríkidæmi séu enn á stefnuskránni.

Við erum pabba-, mömmu-, afa- og ömmu-klan með takmarkaða þolinmæði fyrir „omg n00b“ og caps lock-æsingi. Oldies varð til þegar hópur reynslumikilla spilara ákvað að hætta að þola vitleysuna og spila á eigin forsendum. Markmiðið er einfalt. Rólegt spil, góð stemning og drykkur við hönd.

Stofnað árið 2003

Oldies var stofnað árið 2003 og er líklega elsta tölvuleikjasamfélag landsins. Félagið rak um árabil netþjóna, heimasíðu og öflugt samfélag þar sem þekking var miðlað á milli manna.

Í dag er Oldies fyrst og fremst skemmtilegur félagsskapur sem spilar fjölbreytta leiki, hittist reglulega og heldur í hefðirnar.

Enn í fullu fjöri. Joina Oldies?

Ef þú hefur meiri áhuga á góðu samfélagi en kill/death-hlutfalli, þá áttu heima hjá okkur.

Umsækjendur þurfa að vera 26 ára og eldri, þó með ákveðnum undantekningum. Hér er engin pressa, engin skyldumæting, bara gott samfélag og spilun á eigin forsendum.

Eftirfarandi er aðeins brot af þeim leikjum sem meðlimir spila:

ARC Raiders
Battlefield
Call of Duty
Company of Heroes
Counter-Strike
EVE Online
Grand Theft Auto
PUBG: Battlegrounds
Rust
The Witcher
World of Tanks

Það eina sem þú þarft að gera er að joina Discord hér og kynna þig.

Ef þú finnur ekki Discord-rás fyrir þinn leik, þá setjum við hana upp fyrir þig.

Taktu vini þína með og hjálpaðu okkur að efla sterkt og afslappað „non-pro“ klansamfélag.

„We are old and grumpy and on medication.“

Oldies samsteypan
Oldies að lana í „síðustu viku“. Tíminn líður hraðar en pingið okkar.