Close Menu
    Nýjar fréttir

    Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar

    23.06.2026

    Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku

    18.06.2026

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026

    Leikjarinn leggur Twitch á hilluna eftir 15 ár

    14.06.2026
    1 2 3 … 351 Next
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    esports.is
    • Forsíða
    • Tölvur og leikir
      • Íslenskt efni
      • Rafíþróttir
      • Mót framundan
      • Væntanlegt
      • Nintendo
      • PC leikir
      • Playstation
      • Xbox
    • Leikjarýni
      1. Leikjarýni
      Featured
      90

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      By Chef-Jack12.08.2025
      Recent
      9.0

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      12.08.2025
      7.0

      Leikjarýni: RC-leikurinn Recharge kemur á óvart

      07.08.2025
      5.0

      Leikjarýni: Tónlistin heillar, en leikurinn sjálfur nær ekki sömu hæðum – þarfnast enn talsverðrar yfirferðar

      30.06.2025
    • Auglýsa?
    • Um okkur
      • Hafðu samband
      • Auglýsa?
      • Fréttabréf
      • Um vefinn
      • Íslenskar Fb grúppur
    • Klönin
      • Klön yfirlit
      • Dusty
      • Oldies Samsteypan
    • is
      • is
      • en
    esports.is
    Home»Rafíþróttir - Lan-, online mót»Omni hreppti Íslandsmeistaratitilinn í PUBG
    Omni hreppti Íslandsmeistaratitilinn í PUBG
    Rafíþróttir - Lan-, online mót

    Omni hreppti Íslandsmeistaratitilinn í PUBG

    By Chef-Jack08.12.20252 Mins Read
    Share
    Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link

    Omni hreppti Íslandsmeistaratitilinn í PUBG

    Íslandsmeistaramótið í PUBG: Battlegrounds fór fram um helgina, dagana 6. og 7. desember, þar sem sterkustu lið landsins mættust í hörkubaráttu um titilinn. Mótið hófst í ágúst með umfangsmikilli deildarkeppni og komust 15 efstu liðin áfram í úrslitin sem nú hafa lokið með eftirminnilegum sigri Omni.

    Omni hreppti Íslandsmeistaratitilinn í PUBG
    Steypa og Snapster leiddu áhorfendur í gegnum keppnina.

    Steypa og Snapster sáu um lýsingar og leiddu áhorfendur í gegnum hvert móment keppninnar, en beint streymi var á Twitch-rás GameTíVí sem hefur fest sig í sessi sem helsti vettvangur íslenska PUBG-samfélagsins. Áhorfendur fengu þannig lifandi innsýn í þróun mótsins þar sem taktík, útsjónarsemi og samheldni liða skiptu sköpum.

    Omni hreppti Íslandsmeistaratitilinn í PUBG

    Leikið var á kortunum Rondo, Taego, Miramar og Erangel sem hvert um sig prófar leikmenn á ólíkan hátt. Keppendur fengu einnig að spreyta sig á nýendurbættri vetrarútgáfu Erangel sem setti ferskan svip á keppnina.

    Omni hreppti Íslandsmeistaratitilinn í PUBG
    Alls voru spilaðir 12 leikir á Íslandsmeistaramótinu um helgina.

    Þau lið sem tókust á um Íslandsmeistaratitilinn voru eftirfarandi, raðað í stafrófsröð: 354 esports, B1sdak, CPK, FresH, Hlandblettur, Hliðarmenn, Hraunbitar, KNGR, NcFc, Oldies, Omni, PNGR, Team Iceland, Trúðalestin og Trúðapestin.

    Að loknum tveimur keppnisdögum stóðu Omni uppi sem sannir Íslandsmeistarar 2025. PNGR tryggðu sér annað sætið eftir stöðuga framgöngu og Hlandblettur lauk mótinu í þriðja sæti.

    Úrslit Íslandsmeistaramótsins í PUBG 2025

    1. sæti: Omni

    2. sæti: PNGR

    3. sæti: Hlandblettur

    Omni hafa því tryggt sér titilinn eftir frábæra frammistöðu og ljóst er að íslenskt PUBG-samfélag heldur áfram að vaxa og þróast með hverju ári.

    Myndbandið hér að neðan sýnir seinni daginn í Íslandsmeistaramótinu.

    Myndir: skjáskot úr myndbandi

    354 eSports B1sdak CPK Fresh - Pubg GameTíví GameTíví deildin í PUBG Hlandblettur Hliðarmenn Hraunbitar Icelandic PUBG League - IPL Íslenskt efni KNGR NcFc Oldies Samsteypan OMNI PNGR - Pungarnir PUBG - PlayerUnknown's Battlegrounds Rafíþróttir Team-Iceland - PubG
    Share. Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Chef-Jack

    Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

    Tengdar færslur

    Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar

    23.06.2026

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026

    Dusty tryggði sér Stórmeistaratitil Ljósleiðarans

    29.05.2026

    Finnsi rafíþróttamaður ársins

    27.05.2026
    Við mælum með

    Þorsteinn „TH0R“ Friðfinnsson mætir á PGL Astana

    04.04.2026

    Íslenskur Cobblemon server opnaður fyrir Minecraft aðdáendur

    28.03.2026

    Pixelwear.is tengir saman nörda- og leikjasamfélög landsins

    27.03.2026

    Íslendingurinn Torfi Frans: „Minecraft World er mikilvægt skref“

    22.03.2026
    1 2 3 … 10 Next
    Mest lesið
    • Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar
      Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar
      23.06.2026
    Leikjarýni í vinnslu

    12. ágúst 2025
    Nýjasta leikjarýnin komin út: Echoes of the End

    7. ágúst 2025
    Nýleg leikjarýni: Recharge.

    30. júní 2025
    Nýleg leikjarýni: The Book of Aaru.

    Fleiri leikjarýni hér.

    esports.is
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    • Forsíða
    • Auglýsa
    • Tölvuleikir
    • Um vefinn

    Type above and press Enter to search. Press Esc to cancel.