Close Menu
    Nýjar fréttir

    Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar

    23.06.2026

    Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku

    18.06.2026

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026

    Leikjarinn leggur Twitch á hilluna eftir 15 ár

    14.06.2026
    1 2 3 … 351 Next
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    esports.is
    • Forsíða
    • Tölvur og leikir
      • Íslenskt efni
      • Rafíþróttir
      • Mót framundan
      • Væntanlegt
      • Nintendo
      • PC leikir
      • Playstation
      • Xbox
    • Leikjarýni
      1. Leikjarýni
      Featured
      90

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      By Chef-Jack12.08.2025
      Recent
      9.0

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      12.08.2025
      7.0

      Leikjarýni: RC-leikurinn Recharge kemur á óvart

      07.08.2025
      5.0

      Leikjarýni: Tónlistin heillar, en leikurinn sjálfur nær ekki sömu hæðum – þarfnast enn talsverðrar yfirferðar

      30.06.2025
    • Auglýsa?
    • Um okkur
      • Hafðu samband
      • Auglýsa?
      • Fréttabréf
      • Um vefinn
      • Íslenskar Fb grúppur
    • Klönin
      • Klön yfirlit
      • Dusty
      • Oldies Samsteypan
    • is
      • is
      • en
    esports.is
    Home»Rafíþróttir - Lan-, online mót»OMNI sigraði í PUBG scrim mótinu í gær
    PlayerUnknown’s Battlegrounds (PUBG)
    Rafíþróttir - Lan-, online mót

    OMNI sigraði í PUBG scrim mótinu í gær

    By Chef-Jack18.08.20252 Mins Read
    Share
    Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    OMNI sigraði í PUBG scrim mótinu
    OMNI sigraði í PUBG scrim mótinu

    Rafíþróttasamfélagið á Íslandi hittist á ný, eftir gott sumarfrí, til baráttu þegar PUBG scrim mót fór fram í gær sunnudaginn 17. ágúst. Þátttakan var ókeypis og skráðu sig alls 15 lið til leiks. Þar mátti sjá bæði þekkt nöfn úr íslensku PUBG-senunni og nýliða sem reyndu með sér í harðri samkeppni.

    Eftir sex leiki stóðu leikmenn OMNI uppi sem sigurvegarar með samtals 71 stig. Í öðru sæti endaði Agent000 með 65 stig, og í þriðja sæti lenti Fresh með 54 stig. NLG Red og Hraunbitar fylgdu fast á eftir í fjórða og fimmta sæti.

    Lið eins og Hlandblettur, Hot Drop og Trudapestin héldu sér einnig vel í baráttunni og sköpuðu spennu fram á síðustu mínútur. Þá voru einnig lið á borð við Team Iceland, NIC Cage Fan Club og HYPE sem tóku þátt og settu svip sinn á mótið.

    OMNI sigraði í PUBG scrim mótinu
    Liðin sem tóku þátt í PUBG scrim mótinu 17. ágúst. Alls skráðu sig 15 lið til leiks.

    Þrátt fyrir að scrim sé æfingamót sýndi það enn á ný styrk íslenska PUBG samfélagsins, sem heldur áfram að eflast með reglulegum viðburðum.

    Scrimið var haldið í aðdraganda væntanlegrar deildarkeppni sem hefst í lok mánaðarins og lofar góðu um spennandi mánuði fram undan.

    Dagsetningar deildarkeppninnar:
    31. ágúst kl. 20:00 – 6 leikir
    21. september kl. 20:00 – 6 leikir
    12. október kl. 20:00 – 6 leikir
    2. nóvember kl. 20:00 – 6 leikir

    Hvert kvöld er sjálfstætt mót, þannig að lið geta valið frjálst hvort þau taki þátt í einu kvöldi, tveimur, þremur eða öllum fjórum. Verðlaun verða veitt fyrir hvern keppnisdag og verða þau kynnt síðar.

    Stigagjöf og úrslit deildarkeppninnar:
    Stig verða reiknuð út frá lokasæti liða hvert kvöld og telja bæði til deildarmeistaratitilsins og í heildarstigatöflu keppninnar. Heildarstigataflan ræður því hvaða 16 efstu lið tryggja sér sæti í úrslitum og Íslandsmótinu sem fer fram 6. og 7. desember, báða dagana klukkan 20:00 með sex leikjum hvorn dag.

    Ef einhverjar spurningar vakna er hægt að hafa samband við stjórnendur í Facebook-hópnum: Íslenska PUBG samfélagið.

    PlayerUnknown’s Battlegrounds (PUBG)

    OMNI PUBG - PlayerUnknown's Battlegrounds
    Share. Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Chef-Jack

    Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

    Tengdar færslur

    Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar

    23.06.2026

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026

    Dusty tryggði sér Stórmeistaratitil Ljósleiðarans

    29.05.2026

    Finnsi rafíþróttamaður ársins

    27.05.2026
    Við mælum með

    Þorsteinn „TH0R“ Friðfinnsson mætir á PGL Astana

    04.04.2026

    Íslenskur Cobblemon server opnaður fyrir Minecraft aðdáendur

    28.03.2026

    Pixelwear.is tengir saman nörda- og leikjasamfélög landsins

    27.03.2026

    Íslendingurinn Torfi Frans: „Minecraft World er mikilvægt skref“

    22.03.2026
    1 2 3 … 10 Next
    Mest lesið
    • Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar
      Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar
      23.06.2026
    Leikjarýni í vinnslu

    12. ágúst 2025
    Nýjasta leikjarýnin komin út: Echoes of the End

    7. ágúst 2025
    Nýleg leikjarýni: Recharge.

    30. júní 2025
    Nýleg leikjarýni: The Book of Aaru.

    Fleiri leikjarýni hér.

    esports.is
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    • Forsíða
    • Auglýsa
    • Tölvuleikir
    • Um vefinn

    Type above and press Enter to search. Press Esc to cancel.