Close Menu
    Nýjar fréttir

    Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar

    23.06.2026

    Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku

    18.06.2026

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026

    Leikjarinn leggur Twitch á hilluna eftir 15 ár

    14.06.2026
    1 2 3 … 351 Next
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    esports.is
    • Forsíða
    • Tölvur og leikir
      • Íslenskt efni
      • Rafíþróttir
      • Mót framundan
      • Væntanlegt
      • Nintendo
      • PC leikir
      • Playstation
      • Xbox
    • Leikjarýni
      1. Leikjarýni
      Featured
      90

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      By Chef-Jack12.08.2025
      Recent
      9.0

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      12.08.2025
      7.0

      Leikjarýni: RC-leikurinn Recharge kemur á óvart

      07.08.2025
      5.0

      Leikjarýni: Tónlistin heillar, en leikurinn sjálfur nær ekki sömu hæðum – þarfnast enn talsverðrar yfirferðar

      30.06.2025
    • Auglýsa?
    • Um okkur
      • Hafðu samband
      • Auglýsa?
      • Fréttabréf
      • Um vefinn
      • Íslenskar Fb grúppur
    • Klönin
      • Klön yfirlit
      • Dusty
      • Oldies Samsteypan
    • is
      • is
      • en
    esports.is
    Home»Tölvuleikir»Óyfirstíganlegur þröskuldur“ segir Halldór um fyrstu útgáfu Myrkur Games
    Myrkur Games sameinar íslenskt hugvit og hágæða tækni í stórleiknum Echoes of the End – kemur út í sumar
    Tölvuleikir

    Óyfirstíganlegur þröskuldur“ segir Halldór um fyrstu útgáfu Myrkur Games

    By Chef-Jack10.12.2025Updated:12.12.20254 Mins Read
    Share
    Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link

    Myrkur Games sameinar íslenskt hugvit og hágæða tækni í stórleiknum Echoes of the End – kemur út í sumar

    Halldór Snær Kristjánsson, framkvæmdastjóri og meðstofnandi Myrkur Games, var nýverið gestur í hlaðvarpinu Stéttir landsins, þar sem þáttastjórnendur eru Hinrik Wöhler og Ólafur Jóhann Þórbergs.

    Þar var komið víða við í tengslum við tölvuleikjaiðnaðinn og Halldór fór ítarlega yfir allt ferlið sem fylgir því að gefa út tölvuleik, allt frá hugmyndavinnu til útgáfu.

    Myrkur Games gaf út Echoes of the End fyrr í sumar og Halldór líkti ferlinu við rússíbanareið.

    „Bara að komast í gegnum þetta einu sinni er rosa verðmætt, alveg sama hvað við gerum næst. Við erum komnir yfir þennan þröskuld sem var óyfirstíganlegur. Við töluðum um það í þróunarferli, það var alls ekkert víst, á hvaða tímapunkti sem er, að við kæmum á endastað. Þetta er sífelldur rússibani alla leiðina í gegn,“

    sagði Halldór í hlaðvarpinu.

    Halldór segir að sérstaða leiksins hafi verið meðal annars íslenska landslagið, náttúran og hljóðin en í leiknum má sjá mörg íslensk kennileiti og meðal annars heyra íslensk fuglahljóð.

    „Hugmyndin var byggð á því að þetta sé nýr ævintýraheimur, fólk var kannski komið með leið á að það sé Assassin’s Creed númer 18 og það var spennandi að þetta væri þá nýr heimur.

    Sömuleiðis er leikurinn og útlit leiksins dregið af landslagi Íslands, sem hafði sést aðeins en ekki mikið í leikjum. Með því að skanna hér út um allt og einnig settum við inn íslensk fuglahljóð.“

    Halldór segir að það hafi verið töluverð áskorun að ráðast í verkefnið með fámennara starfsliði en algengt er í slíkum framleiðslum. Hann var jafnframt spurður út í fjármögnun leikjarins og hvort fjárfestar og samstarfsaðilar hefðu verið tilbúnir að hoppa með þeim um borð frá upphafi.

    Myrkur Games sameinar íslenskt hugvit og hágæða tækni í stórleiknum Echoes of the End – kemur út í sumar

    „Það var ákveðin sérstaða að gera þetta með 40 manns og svara markaðseftirspurninni. Líkurnar að þú munir veðja á nýtt hugverk, þetta er stór þröskuldur að komast inn í markaðinn.

    Það voru fáir nýir inn í iðnaðinn eins og við, og það var þröskuldurinn sem breyttist með tækniþróun en núna eru fleiri að koma inn eftir okkur en við náðum að vera snemma í þessar bylgju.“

    Hann er einnig spurður út í framtíðarhorfur fyrirtækisins og segir Halldór að ákveðin þekking og traust undirstaða sé nú komin innan Myrkur Games, auk þess sem fyrirtækið geti í auknum mæli nýtt sér stærðarhagkvæmni í komandi verkefnum.

    „Það sem byggðist með Echoes of the End er að við byggðum undirstöðutæknina sem var heljarinnar verkefni og bjuggum til innri þekkingu með að smíða þetta.

    Fyrsti leikur hjá fyrirtæki er kannski 5-8 ár að gera og hagkvæmnin er að næsti leikur verður ekki 5-8 ár heldur 3-4 ár þannig það er hagkvæmni þar.“

    Íslenski leikurinn Echoes of the End kemur út í ágúst 2025 – glænýtt gameplay-myndband

    Allur tilfinningaskalinn að gefa út leik

    Halldór Snær lýsir því sem furðulegri og ólýsanlegri tilfinningu að lesa umsagnir um eigin leik eftir alla þessa löngu og krefjandi vinnu. Hann segir jafnframt að strax eftir útgáfu hafi teyminu verið einhuga um að safna allri mögulegri gagnrýni, greina hana vel og nýta til að betrumbæta leikinn áfram.

    „Þetta er erfitt að lýsa, þetta eru allar tilfinningarnar á sama tíma. Þar sem við erum að gefa út okkar fyrsta leik gekk margt vel en sumt ekki. Leikurinn fékk mikið lof fyrir ákveðna þætti en ákveðnir þættir gætu verið betri útaf við erum að gefa út okkar fyrsta leik.

    Við unnum mjög stóra uppfærslu á leiknum sem hafði feedback playera að leiðarljósi og færði fram fjölmarga nýja features (eins og glænýtt armour kerfi og fl). Viðtökurnar á Enhanced Edition hafa verið mjög góðar, en hægt er að finna meira ítarefni um Enhanced Edition uppfærsluna á Steam.

    Þannig það var rosalega gott að sjá hversu margir elskuðu leikinn. En það voru tækni issues, eitthvað hérna og eitthvað þarna.“

    „Það sem við gerðum þar sem við erum minna fyrirtæki en hin og gátum brugðist við hraðar. Við ákváðum, að við fórum gegnum eitt einasta review, og allar umsagnir á netinu,“

    sagði Halldór og í kjölfarið gaf Myrkur Games út uppfærslu til koma á móts við ákveðna þætti sem hafði verið bent á.

    Að lokum segir Halldór að hann hafi oft velt því fyrir sér augnablikinu þegar leikurinn yrði loks gefinn út og líkir þeirri upplifun við að klára maraþonhlaup.

    „Hún er líka skrýtin því maður magnar þetta augnablik svo mikið í hausnum á sér. Þegar þú ert búinn að fara gegnum allan sársaukann að komast þangað. Það er erfitt að lýsa þessu, þetta er svo löng vegferð, hún er svo erfitt.

    Þetta er eins og hlaupa maraþon þú getur ekki hlaupið í hringi til að fagna, þú verður eiginlega bara að leggjast niður. “

    Hægt er að hlusta á spjallið í heild sinni hér fyrir neðan en Halldór Snær fer yfir leikjabransann á Íslandi, framtíðarhorfur, fjármögnun og ýmislegt fleira í spjalli í hlaðvarpinu Stéttir landsins.

    Myndir: echoesoftheend.is

    Echoes of the End Halldór Snær Kristjánsson Íslenskt efni Myrkur Games PC leikur picks Stéttir landsins - Hlaðvarp Xbox
    Share. Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Chef-Jack

    Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

    Tengdar færslur

    Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku

    18.06.2026

    Leikjarinn leggur Twitch á hilluna eftir 15 ár

    14.06.2026

    Bancho snýr aftur í eldhúsið

    12.06.2026

    Dusty tryggði sér Stórmeistaratitil Ljósleiðarans

    29.05.2026
    Við mælum með

    Þorsteinn „TH0R“ Friðfinnsson mætir á PGL Astana

    04.04.2026

    Íslenskur Cobblemon server opnaður fyrir Minecraft aðdáendur

    28.03.2026

    Pixelwear.is tengir saman nörda- og leikjasamfélög landsins

    27.03.2026

    Íslendingurinn Torfi Frans: „Minecraft World er mikilvægt skref“

    22.03.2026
    1 2 3 … 10 Next
    Mest lesið
    Leikjarýni í vinnslu

    12. ágúst 2025
    Nýjasta leikjarýnin komin út: Echoes of the End

    7. ágúst 2025
    Nýleg leikjarýni: Recharge.

    30. júní 2025
    Nýleg leikjarýni: The Book of Aaru.

    Fleiri leikjarýni hér.

    esports.is
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    • Forsíða
    • Auglýsa
    • Tölvuleikir
    • Um vefinn

    Type above and press Enter to search. Press Esc to cancel.