Hver verður krýndur Prefire Meistarinn í Counter-Strike? 28. mars fer fram úrslitakvöld Ljósleiðaradeildarinnar í Next Level Gaming, Egilshöll.
Þar mætast tvö sterkustu Counter-Strike lið landsins og keppa til úrslita, en þau verða ekki ein í því að keppast um fyrsta sætið á úrslitakvöldinu, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Rafíþróttasambandi Íslands.
Á staðnum verður Prefire Meistarinn í boði Red Bull, sem er skemmtileg en krefjandi áskorun í hinum vinsæla Prefire í Counter-Strike.
Prefire Meistarinn verður krýndur í lok úrslitakvöldsins og fer heim með glæsilega vinninga frá Ofar og Red Bull.
Hvernig virkar Prefire Meistarinn?
- Allir sem mæta á úrslitakvöldið geta spreytt sig í Prefire Meistaranum.
- Það er keppt í fyrirfram ákveðnum Prefire korti (Workshop map)
- Allir sem spreyta sig fá að snúa lukkuhjóli með smærri vinningum.
- Besti tíminn hjá hverjum keppanda fer á stigatöfluna.
- Keppendum er velkomið að spreyta sig eins oft og þeir vilja yfir kvöldið til að bæta tímann sinn.
- Besti tíminn í lok kvöldsins fer heim með glæsilegan vinning frá Ofar og Red Bull.
Rosalegur vinningur
Það er til mikils að vinna, en sigurvegarinn í lok kvöldsins fer heim með glæsilegan Lenovo Legion Pro leikjaskjá frá Ofar að andvirði 100 þúsund króna.
Þessi 27″ skjár býður upp á silkimjúkar hreyfingar og mikla litadýpt með QD-OLED skjátækni, QHD upplausn og 280 Hz tiftíðni. Alveg frábær viðbót í setup-ið hjá öllum tölvuleikjaspilurum.
Upphitun og æfing
Áhugasamir geta mætt tilbúnir til leiks í Prefire Meistarann, en í aðdraganda úrslitakvöldsins verður opinberað hvaða Prefire kort verður keppt í.
Það er því um að gera að fylgjast vel með á Facebook síðu viðburðarins þar sem þær upplýsingar verða fyrst birtar.
Annars er búist við hörkukeppni og góðri stemningu á úrslitakvöldi Ljósleiðaradeildarinnar og Rafíþróttasamband Íslands hvetur allt Counter-Strike-áhugafólk landsins til að taka frá kvöldið og mæta á svæðið.
Myndir: Rafíþróttasamband Íslands







