
Rafíþróttasamband Íslands (RÍSÍ) og Next Level Gaming ehf. hafa skrifað undir samstarfssamning um aukið og markvisst samstarf um framkvæmd rafíþróttaviðburða á Íslandi.
Samstarfið nær meðal annars til ungmennamóta, úrslitaviðburða og annarra stærri viðburða á vegum sambandsins sem haldnir verða í aðstöðu Next Level Gaming í Egilshöll.

Um helgina fór KIA Íslandsmót ungmenna í rafíþróttum fram í húsakynnum Next Level Gaming við góðar undirtektir. Viðburðurinn heppnaðist vel og undirstrikar mikilvægi þess að hafa góða og aðgengilega aðstöðu fyrir skipulagt mótahald í rafíþróttum.

Jökull Jóhannsson framkvæmdastjóri Rafíþróttasambands Íslands segir samstarfið mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu rafíþróttastarfs á Íslandi.
„Við erum mjög ánægð með að hafa skrifað undir samstarfssamning við Next Level Gaming.
Aðstaðan í Egilshöll skapar góð skilyrði fyrir mótahald og gerir okkur kleift að halda bæði ungmennamót og úrslitaviðburði á einum stað sem hentar vel fyrir keppendur og áhorfendur,“
segir Jökull.
Hann segir sérstaklega mikilvægt að tryggja stöðugleika í aðstöðu fyrir mótahald.
„Viðburðir eins og Kia Íslandsmót ungmenna sýna hversu miklu máli skiptir að hafa trausta umgjörð utan um mótin.
Samstarfið við Next Level Gaming styrkir þann grunn og styður við áframhaldandi þróun rafíþrótta á Íslandi.“
Þórir Viðarsson framkvæmdastjóri Next Level Gaming segir fyrirtækið leggja áherslu á að styðja við skipulagt rafíþróttastarf í samstarfi við sambandið.
„Það er okkur mikilvægt að vinna náið með Rafíþróttasambandi Íslands að uppbyggingu rafíþrótta á Íslandi.
Með þessum samningi skapast góðar forsendur fyrir áframhaldandi samstarfi um mótahald og viðburði í Egilshöll og við hlökkum til verkefnanna fram undan,“
segir Þórir.

Samstarfssamningurinn er liður í því að efla umgjörð rafíþróttaviðburða á Íslandi og styrkja aðstöðu fyrir keppendur á öllum aldri.
Myndir: Rafíþróttasamband Íslands



