Team Falcons tryggði sér annan sigur í röð í Club Championship á Esports World Cup í Riyadh, Saudi Arabíu, og hlaut sjö milljónir dollara í verðlaun sem jafngildir um 900 milljónum íslenskra króna. En á sama tíma hafa vaknað spurningar um sanngirni og hlutleysi mótsins.
Greiddir stuðningsmenn „Superfans“, sem fengnir voru til að hvetja áhorfendur, segja að stuðningur hafi verið stilltur í þágu Falcons. Einn var bannaður fyrir að halda á skilti með orðinu „king“, þar sem það þótti viðkvæmt í ljósi þess að konungurinn er æðsti leiðtogi Sádi-Arabíu. Leikmenn Aurora kvörtuðu jafnframt yfir því að leysigeislar hefðu verið notaðir til að trufla þá.
SCANDAL
Falcons fans use laser pointers to blind aurora players, their CEO L3rich goes up to stop these people but gets instead told off by security to not cause a scene. pic.twitter.com/T6TlPUHCz6— March (@ItsMarrchy) August 23, 2025
Þá greindi Chopper hjá Team Spirit frá því að skipuleggjendur hefðu beðið hann um að eyða myndbandi þar sem hann lýsti greiddum áhorfendum sem kölluðu ítrekað „Falcons, Falcons“.
🚫chopper stated that the EWC organizers asked to take down content because of his quote:
«Here’s the arena, about 300 paid workers will scream „Falcons, Falcons“ here»
As the reason, he said: ‘it hurt our feelings. pic.twitter.com/17Fbed7JLa
— CS2 NEWS (@CS2News_EN) August 19, 2025
Af hverju er Team Falcons í eldlínunni?
Liðið hefur verið sakað um að njóta sérmeðferðar á mótinu, bæði í gegnum stuðningsmenn og skipulag, og tengsl þess við Public Investment Fund í Sádi-Arabíu hafa vakið gagnrýni.
Gagnrýnendur telja að Esports World Cup sé nýtt í þágu „sportwashing“ (þegar fjárfest er í íþróttum til að styrkja orðspor) en ekki fyrst og fremst til að stuðla að sanngjörnum og opnum keppnum.
Mynd: Esports World Cup




