Lanmótið Skjálfti verður haldið helgina 26. til 28. september í íþróttahúsinu í Digranesi.
Sjá einnig: Skjálfti snýr aftur í Digranes
Á mótinu verður keppt í Counter-Strike 2, League of Legends, auk klassískra leikja á borð við Counter-Strike 1.6 og Quake. Pláss er fyrir 240 keppendur og því um að gera að tryggja sér sæti sem fyrst.
Skjálfti er stærsti LAN-viðburður ársins og mikil eftirvænting ríkir eftir að sjá keppendur mæta á svæðið í haust.
Skráning fer fram á skjalfti.rafithrottir.is




