Hefurðu áhuga á að hita vel upp fyrir haustið? Þá er tækifærið núna, því skráning er hafin í upphitunarscrim í tölvuleiknum PUBG sem fer fram sunnudaginn 17. ágúst klukkan 20:00. Þátttaka er ókeypis og skráning fer fram hér.
Scrimið er haldið í aðdraganda væntanlegrar deildarkeppni sem hefst í lok mánaðarins. Skipuleggjendur hafa fengið nokkrar spurningar frá leikmönnum og vilja því koma á framfæri nokkrum atriðum til að fyrirbyggja misskilning.
Dagsetningar deildarkeppninnar:
31. ágúst kl. 20:00 – 6 leikir
21. september kl. 20:00 – 6 leikir
12. október kl. 20:00 – 6 leikir
2. nóvember kl. 20:00 – 6 leikir
Hvert kvöld er sjálfstætt mót, þannig að lið geta valið frjálst hvort þau taki þátt í einu kvöldi, tveimur, þremur eða öllum fjórum. Verðlaun verða veitt fyrir hvern keppnisdag og verða þau kynnt síðar.
Stigagjöf og úrslit
Stig verða reiknuð út frá lokasæti liða hvert kvöld og telja bæði til deildarmeistaratitilsins og í heildarstigatöflu keppninnar. Heildarstigataflan ræður því hvaða 16 efstu lið tryggja sér sæti í úrslitum og Íslandsmótinu sem fer fram 6. og 7. desember, báða dagana klukkan 20:00 með sex leikjum hvorn dag.
Ef einhverjar spurningar vakna er hægt að hafa samband við stjórnendur í Facebook-hópnum: Íslenska PUBG samfélagið.
Mynd: pubg.com




