Close Menu
    Nýjar fréttir

    Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar

    23.06.2026

    Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku

    18.06.2026

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026

    Leikjarinn leggur Twitch á hilluna eftir 15 ár

    14.06.2026
    1 2 3 … 351 Next
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    esports.is
    • Forsíða
    • Tölvur og leikir
      • Íslenskt efni
      • Rafíþróttir
      • Mót framundan
      • Væntanlegt
      • Nintendo
      • PC leikir
      • Playstation
      • Xbox
    • Leikjarýni
      1. Leikjarýni
      Featured
      90

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      By Chef-Jack12.08.2025
      Recent
      9.0

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      12.08.2025
      7.0

      Leikjarýni: RC-leikurinn Recharge kemur á óvart

      07.08.2025
      5.0

      Leikjarýni: Tónlistin heillar, en leikurinn sjálfur nær ekki sömu hæðum – þarfnast enn talsverðrar yfirferðar

      30.06.2025
    • Auglýsa?
    • Um okkur
      • Hafðu samband
      • Auglýsa?
      • Fréttabréf
      • Um vefinn
      • Íslenskar Fb grúppur
    • Klönin
      • Klön yfirlit
      • Dusty
      • Oldies Samsteypan
    • is
      • is
      • en
    esports.is
    Home»Rafíþróttir - Lan-, online mót»Sveit Strengs tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í bridds
    Spenna og gleði einkenndi parasveitamótið: Sveit Strengs Íslandsmeistari
    Nýir Íslandsmeistarar í parabridds í sveitakeppni. Frá vinstri: Vignir Hauksson, María Bender, Harpa Fold Ingólfsdóttir og Stefán Stefánsson.
    Rafíþróttir - Lan-, online mót

    Sveit Strengs tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í bridds

    By Chef-Jack17.12.20252 Mins Read
    Share
    Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Spenna og gleði einkenndi parasveitamótið: Sveit Strengs Íslandsmeistari
    Nýir Íslandsmeistarar í parabridds í sveitakeppni. Frá vinstri: Vignir Hauksson, María Bender, Harpa Fold Ingólfsdóttir og Stefán Stefánsson.

    Mikil spenna ríkti í síðustu umferðum Íslandsmótsins í parasveitakeppni í bridds þar sem keppni hinna efstu var jöfn og spennandi og margar öflugar sveitir gátu orðið Íslandsmeistarar, allt fram að síðustu spilum. Þegar yfir lauk reyndist sveit Strengs hlutskörpust og er því Íslandsmeistari í parasveitakeppni 2025. Í sigursveitinni spiluðu María Haraldsdóttir Bender-Stefán Stefánsson  og Harpa Fold Ingólfsdóttir, Vignir Hauksson, auk þess sem Skúli Skúlason spilaði einnig í sveitinni.

    Í fréttatilkynningu frá Bridgesambandi Íslands kemur fram að í parasveitakeppni mynda einstaklingar af ólíku kyni makkerskap. Mótið þykir fyrir vikið sérlega skemmtilegt og aðsókn var góð. Konur hafa verið í miklum meirihluta nýrra briddspilara undanfarið og verða æ sterkari í þessari íþrótt sem einu sinni var að mestu karlasport. Spilað var helgina 06.-07. desember sl. Í húsnæði BSÍ, Síðumúlanum.

    Í öðru sæti á mótinu varð sveit Bjarts. Hana skipa hjónin Svanhildur Hall, Sigurður Skagfjörð og Dagbjört Hannesdóttir, Karl G Karlsson. Dagbjört náði með silfrinu að komast upp yfir 100 meistarastig í bridds.

    í þriðja sæti varð sveit Ljósbrár Baldursdóttur en í henni spiluðu tvö hjónapör. Annars vegar Ljósbrá Baldursdóttir- Matthías Þorvaldsson og hins vegar Hjördís Sigurjónsdóttir, Kristján Blöndal.

    Mörg stórmót eru fram undan hjá briddsurum, enda stendur spilavertíðin nú sem hæst. Er vert að minna á jólamót víða og í lok janúar fer fram Reykjavík Bridge Festival í Hörpu. Bridgesamband Íslands hvetur íslenska spilara til að fjölmenna á mótið en margir að sterkustu spilurum heims koma frá útlöndum, Mótið er eitt það öflugasta sem haldið er ár hvert í heiminum og gaman að það sé opið íslenskum almenningi.

    Þá má minna á að Úrvalsdeildin í bridds undir hatti Rafíþróttanna hjá Símanum hefur göngu sína á ný eftir stutt hlé í byrjun febrúar.

    Mynd: bridge.is

    Bridgesamband Íslands
    Share. Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Chef-Jack

    Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

    Tengdar færslur

    Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar

    23.06.2026

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026

    Dusty tryggði sér Stórmeistaratitil Ljósleiðarans

    29.05.2026

    Finnsi rafíþróttamaður ársins

    27.05.2026
    Við mælum með

    Þorsteinn „TH0R“ Friðfinnsson mætir á PGL Astana

    04.04.2026

    Íslenskur Cobblemon server opnaður fyrir Minecraft aðdáendur

    28.03.2026

    Pixelwear.is tengir saman nörda- og leikjasamfélög landsins

    27.03.2026

    Íslendingurinn Torfi Frans: „Minecraft World er mikilvægt skref“

    22.03.2026
    1 2 3 … 10 Next
    Mest lesið
    Leikjarýni í vinnslu

    12. ágúst 2025
    Nýjasta leikjarýnin komin út: Echoes of the End

    7. ágúst 2025
    Nýleg leikjarýni: Recharge.

    30. júní 2025
    Nýleg leikjarýni: The Book of Aaru.

    Fleiri leikjarýni hér.

    esports.is
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    • Forsíða
    • Auglýsa
    • Tölvuleikir
    • Um vefinn

    Type above and press Enter to search. Press Esc to cancel.