Close Menu
    Nýjar fréttir

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026

    Leikjarinn leggur Twitch á hilluna eftir 15 ár

    14.06.2026

    Bancho snýr aftur í eldhúsið

    12.06.2026

    Dusty tryggði sér Stórmeistaratitil Ljósleiðarans

    29.05.2026
    1 2 3 … 351 Next
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    esports.is
    • Forsíða
    • Tölvur og leikir
      • Íslenskt efni
      • Rafíþróttir
      • Mót framundan
      • Væntanlegt
      • Nintendo
      • PC leikir
      • Playstation
      • Xbox
    • Leikjarýni
      1. Leikjarýni
      Featured
      90

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      By Chef-Jack12.08.2025
      Recent
      9.0

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      12.08.2025
      7.0

      Leikjarýni: RC-leikurinn Recharge kemur á óvart

      07.08.2025
      5.0

      Leikjarýni: Tónlistin heillar, en leikurinn sjálfur nær ekki sömu hæðum – þarfnast enn talsverðrar yfirferðar

      30.06.2025
    • Auglýsa?
    • Um okkur
      • Hafðu samband
      • Auglýsa?
      • Fréttabréf
      • Um vefinn
      • Íslenskar Fb grúppur
    • Klönin
      • Klön yfirlit
      • Dusty
      • Oldies Samsteypan
    • is
      • is
      • en
    esports.is
    Home»Rafíþróttir - Lan-, online mót»Tæknin á bakvið HRinginn: „Þessi HRingur verður besti HRingurinn, sennilega frá upphafi“
    HRingurinn 2017
    HRingurinn 2017
    Rafíþróttir - Lan-, online mót

    Tæknin á bakvið HRinginn: „Þessi HRingur verður besti HRingurinn, sennilega frá upphafi“

    By Chef-Jack19.03.2026Updated:29.03.20264 Mins Read
    Share
    Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Spicy.is býður leikjahýsingu án endurgjalds
    Vinirnir Hilmar og Orri.
    Mynd: úr einkasafni

    Undirbúningur fyrir eitt stærsta LAN-mót Íslands, HRinginn, er nú í fullum gangi. Mótið fer fram í Háskóla Reykjavíkur dagana 7. til 9. ágúst og skráning hefst 1. apríl næstkomandi á vefnum hringurinn.net.

    Á bakvið uppsetningu mótsins standa meðal annars vinirnir Orri og Hilmar, rafiðnfræðingar sem starfa við rafvirkjun og gegna lykilhlutverki í framkvæmd viðburðarins, ásamt öflugum hópi fólks með sérþekkingu á sínu sviði sem leggur sitt af mörkum til að tryggja að LAN-mót af þessari stærðargráðu takist sem best.

    Lanmótið HRingurinn 2013
    Mynd: facebook / HRingurinn

    Fyrstu skrefin í skipulagningu

    Þeir hafa undanfarin ár komið að skipulagningu og undirbúningi mótsins og segja að aðkoma þeirra hafi byrjað með einföldu verkefni sem fljótt þróaðist í stærra hlutverk.

    „Við fengum skilaboð frá guðföður HRingsins, honum Flata. Þá vantaði aðila til að setja upp og viðhalda CS:GO serverum yfir helgina,“

    segja þeir og vísa til fyrsta ársins þeirra í verkefninu, árið 2023. Árið eftir tóku þeir svo að sér bæði uppsetningu netþjóna og mótastjórn Counter-Strike mótsins.

    „Mótastjóri sér um að raða saman hvernig mótið er spilað, ákveður styrkleikaröðun liða og tryggir að allt gangi upp á réttum tíma.“

    Lanmótið HRingurinn 2012
    Mynd: facebook / HRingurinn

    Aukin ábyrgð ár frá ári

    Í ár eru þeir orðnir fastir liðir í skipulagningu HRingsins og hafa tekið enn stærri þátt í undirbúningi mótsins en áður.

    Tæknileg uppsetning mótsins hefst formlega daginn fyrir viðburð þegar þeir mæta á svæðið og hefja vinnu við netkerfi og netþjóna. Þó þeir gríni með að mæta „eins og prinsessur“ og krefjast þess að grunninnviðir séu tilbúnir, viðurkenna þeir að vinnan sé umfangsmikil og krefjandi.

    „Við setjum serverana upp, stillum þá og byrjum að undirbúa seedin. En í raun höfum við oft fylgt ráðleggingum frá reyndari aðilum í senunni þegar kemur að styrkleikaröðun.“

    HRingurinn 2017
    Lanmótið HRingurinn 2017
    Mynd: facebook / HRingurinn

    Undirbúningur fyrir mótið hefur lengst af hafist snemma sumars, en í ár var farið af stað mun fyrr.

    „Við byrjuðum að skipuleggja í desember, sem er í fyrsta skipti í mörg ár sem þetta gerist svona snemma,“

    segja þeir og bæta við að það muni skila sér í betri framkvæmd.

    Sjálfboðaliðar í lykilhlutverki

    Á bakvið HRinginn stendur öflugt teymi sjálfboðaliða, að stórum hluta tengt nemendafélaginu Tvíund. Auk þeirra sitja Orri, Hilmar og Flati í sérstakri HRings-nefnd sem heldur utan um skipulag og upplýsingaflæði.

    „Allir sem koma að HRingnum eru sjálfboðaliðar og margir koma aftur ár eftir ár því þetta er einfaldlega svo skemmtilegt.“

    Þegar þeir eru spurðir um eftirminnileg augnablik nefna þeir sérstaklega úrslitadaginn.

    „Sunnudagurinn, þegar við horfum á úrslitaleikinn í Counter-Strike með öllu liðinu, stendur alltaf upp úr.“

    Þegar allt fór úrskeiðis

    Lanmótið HRingurinn 2024
    Lanmótið HRingurinn 2024
    Mynd: facebook / HRingurinn

    Þeir rifja þó einnig upp erfiðari stundir, sérstaklega árið 2024 þegar þeir voru nýir í hlutverkinu.

    „Við settum mótið af stað en ekkert gerðist. Þá kom í ljós að aðeins við gátum skipt um map en ekki spilararnir. Á þeim tímapunkti langaði okkur að labba bara út.“

    Þrátt fyrir slíkar byrjunarörðugleika hefur reynslan styrkt teymið og nú ríkir bjartsýni fyrir komandi móti.

    „Bara af þeirri ástæðu að undirbúningur er hafinn svona snemma getum við lofað að þessi HRingur verður besti HRingurinn, sennilega frá upphafi.“

    Spicy.is - Logo

    Leikjahýsing án endurgjalds

    Til gamans má geta að þeir félagar reka einnig heimasíðuna spicy.is í frístundum, þar sem þeir bjóða upp á meðal annars Minecraft og Vintage Story, og íslenskum spilurum stendur til boða leikjahýsing án endurgjalds.

    HRingurinn fer fram í Háskóla Reykjavíkur dagana 7. til 9. ágúst og má búast við fjölmennu og öflugu móti þar sem bæði keppendur og áhorfendur koma saman í einni stærstu rafíþróttahátíð landsins.

    HRingurinn Íslenskt efni picks Spicy.is
    Share. Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Chef-Jack

    Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

    Tengdar færslur

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026

    Dusty tryggði sér Stórmeistaratitil Ljósleiðarans

    29.05.2026

    Finnsi rafíþróttamaður ársins

    27.05.2026

    Nexus lokar í Kringlunni og Pedro fagnar

    25.05.2026
    Við mælum með

    Þorsteinn „TH0R“ Friðfinnsson mætir á PGL Astana

    04.04.2026

    Íslenskur Cobblemon server opnaður fyrir Minecraft aðdáendur

    28.03.2026

    Pixelwear.is tengir saman nörda- og leikjasamfélög landsins

    27.03.2026

    Íslendingurinn Torfi Frans: „Minecraft World er mikilvægt skref“

    22.03.2026
    1 2 3 … 10 Next
    Mest lesið
    • Birkir Fannar - Leikjarinn kveður Twitch eftir 15 ára streymi
      Leikjarinn leggur Twitch á hilluna eftir 15 ár
      14.06.2026
    • Bancho snýr aftur í eldhúsið
      Bancho snýr aftur í eldhúsið
      12.06.2026
    • Rafíþróttasamband Íslands - RÍSÍ - Logo
      Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli
      16.06.2026
    Leikjarýni í vinnslu

    12. ágúst 2025
    Nýjasta leikjarýnin komin út: Echoes of the End

    7. ágúst 2025
    Nýleg leikjarýni: Recharge.

    30. júní 2025
    Nýleg leikjarýni: The Book of Aaru.

    Fleiri leikjarýni hér.

    esports.is
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    • Forsíða
    • Auglýsa
    • Tölvuleikir
    • Um vefinn

    Type above and press Enter to search. Press Esc to cancel.