
Úrvalsdeildin undir hatti Rafíþrótta Símans, sló í gegn á árinu 2025 og er nú komið að nýju móti. Magnús Magnússon, til vinstri, verður í áberandi hlutverki sem lýsandi og nýtur stuðnings gesta sem elska bridds og greina bardagana með Magnúsi. Fyrsta viðureign ársins fer fram í kvöld. Um að gera að fylgjast með!
Það stefnir í skemmtilegan og harðan slag í Úrvalsdeildinni í bridds. Nýtt mót hefst í kvöld í beinni útsendingu hjá Símanum. Verður hægt að fylgjast með valinni viðureign í viku hverri á föstudagskvöldum klukkan 19 sem og á youtube og Twitch.
Sterkustu sveitir landsins taka þátt og eftir slembival verða eftirfarandi viðureignir í fyrstu umferð:
Málning keppir við Betri ferðir.
Sveit Gabríels Gíslasonar spilar við Selfoss.
Grant Thornton leikur við Fæeyjar.
Team Akureyri spilar gegn Vestanstormi.
SFG spilar við Infocapital.
Tíminn og vatnið leika gegn Snorra Karlssyni.
Doktorinn leikur við Fiskmarkað Djúpavogs
Kvennalandsliðið spilar við sveit Gunnlaugs Sævarssonar.
Magnús Magnússon landsliðsmaður í bridds og kennari hjá Bridgesambandi Íslands hefur umsjá með mótinu og lýsir sjónvarpsleikjum beint með aðstoð gesta.
Í fyrsta sjónvarpsleik mótsins í beinni í kvöld eigast við sterkasta sveit Austurlands og Doktorinn.
Mynd: Bridgesamband Íslands



