Close Menu
    Nýjar fréttir

    Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar

    23.06.2026

    Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku

    18.06.2026

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026

    Leikjarinn leggur Twitch á hilluna eftir 15 ár

    14.06.2026
    1 2 3 … 351 Next
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    esports.is
    • Forsíða
    • Tölvur og leikir
      • Íslenskt efni
      • Rafíþróttir
      • Mót framundan
      • Væntanlegt
      • Nintendo
      • PC leikir
      • Playstation
      • Xbox
    • Leikjarýni
      1. Leikjarýni
      Featured
      90

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      By Chef-Jack12.08.2025
      Recent
      9.0

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      12.08.2025
      7.0

      Leikjarýni: RC-leikurinn Recharge kemur á óvart

      07.08.2025
      5.0

      Leikjarýni: Tónlistin heillar, en leikurinn sjálfur nær ekki sömu hæðum – þarfnast enn talsverðrar yfirferðar

      30.06.2025
    • Auglýsa?
    • Um okkur
      • Hafðu samband
      • Auglýsa?
      • Fréttabréf
      • Um vefinn
      • Íslenskar Fb grúppur
    • Klönin
      • Klön yfirlit
      • Dusty
      • Oldies Samsteypan
    • is
      • is
      • en
    esports.is
    Home»Rafíþróttir - Lan-, online mót»Yfirlýsing zweih vekur sterk viðbrögð í CS-samfélaginu
    Rafíþróttir - Lan-, online mót

    Yfirlýsing zweih vekur sterk viðbrögð í CS-samfélaginu

    By Chef-Jack21.12.20252 Mins Read
    Share
    Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link

    Það sem eitt sinn var léttur brandari á milli CS-nörda hefur nú þróast í alvarlegt drama sem hefur heltekið samfélagið. Ummæli Ivans Ivan „zweih“ Gogin um að makazze yrði settur á bekkinn innan sex mánaða frá komu sinni til Natus Vincere (NAVI) hafa elta þann síðarnefnda allt tímabilið.

    ☝️ zweih’s take: NAVI rookie makazze won’t last more than six months. pic.twitter.com/ldFkCgSNAB

    — CS2 NEWS (@CS2News_EN) July 1, 2025

    Meme sem poppaði reglulega upp í hvert skipti sem liðinu gekk ekki sem skyldi og var orðið fastur liður í umræðunni.

    Í þessari viku lokaðist hins vegar hringurinn með óvæntum hætti. Það var ekki makazze sem endaði á varamannabekknum heldur zweih sjálfur sem var settur til hliðar hjá Team Spirit, ásamt liðsstjórnanda liðsins Leonid „chopper“ Vishnyakov. Internetið gerði það sem internetið gerir best og meme-ið lifnaði við á ný, nú í útgáfu þar sem spádómurinn beindist að höfundinum sjálfum.

    Makazze lét ekki sitt eftir liggja og birti stutta færslu á X skömmu eftir að tíðindin urðu opinber. Nafn zweih var ekki nefnt berum orðum en vísunin var svo augljós að öllum var ljóst hvert skilaboðin beindust.

    😮

    — NAVI Makazze (@makazzee) December 18, 2025

    Í stað þess að láta málið fjara út ákvað zweih að svara með ítarlegri yfirlýsingu. Þar útskýrði hann hvers vegna hann hefði á sínum tíma sett fram ummælin um makazze og fór þá skrefinu lengra en flestir bjuggust við.

    To all haters who is laughing at my words about makazze: When I said it on StRoGo’s stream I wasnt talking about his mechanical or individual skills and I can’t argue with anyone who says that he is better then me or something like that, I was talking only about his past when he…

    — zweih1437 (@zweih1437) December 19, 2025

    Hann hélt því fram að makazze, eða leikmenn í kringum hann, hefðu notast við „radar hack“ í keppni í Counter-Strike 2. Jafnvel þótt makazze hefði ekki sjálfur keyrt hugbúnaðinn fullyrti zweih að hann hefði vitað af því og notið góðs af upplýsingunum.

    Yfirlýsingin endaði á dramatískum nótum þar sem zweih sagði að málið hefði í raun eyðilagt feril einhvers. Hvort þar sé átt við sjálfan sig, makazze eða einhvern ónefndan þriðja aðila er enn óljóst. Ummælin voru lengi talin smávægilegt atriði í umræðu Counter-Strike samfélagsins en hafa nú tekið á sig nýja merkingu í ljósi síðari atburða.

    Mynd: x.com / CS2 NEWS

    counter strike Counter Strike 2 Ivan "zweih" Gogin Leonid "chopper" Vishnyakov Makazze navi Team Spirit
    Share. Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Chef-Jack

    Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

    Tengdar færslur

    Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar

    23.06.2026

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026

    Dusty tryggði sér Stórmeistaratitil Ljósleiðarans

    29.05.2026

    Finnsi rafíþróttamaður ársins

    27.05.2026
    Við mælum með

    Þorsteinn „TH0R“ Friðfinnsson mætir á PGL Astana

    04.04.2026

    Íslenskur Cobblemon server opnaður fyrir Minecraft aðdáendur

    28.03.2026

    Pixelwear.is tengir saman nörda- og leikjasamfélög landsins

    27.03.2026

    Íslendingurinn Torfi Frans: „Minecraft World er mikilvægt skref“

    22.03.2026
    1 2 3 … 10 Next
    Mest lesið
    Leikjarýni í vinnslu

    12. ágúst 2025
    Nýjasta leikjarýnin komin út: Echoes of the End

    7. ágúst 2025
    Nýleg leikjarýni: Recharge.

    30. júní 2025
    Nýleg leikjarýni: The Book of Aaru.

    Fleiri leikjarýni hér.

    esports.is
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    • Forsíða
    • Auglýsa
    • Tölvuleikir
    • Um vefinn

    Type above and press Enter to search. Press Esc to cancel.