Einstakt augnablik vakti athygli á EVO 2025, stærsta viðburðar í heimi bardagaleikja, hefur undanfarið vakið gríðarlega athygli á netinu. Þar mátti sjá japanska leikmanninn Kazuyuki „KojiKOG“ Koji bregðast óvenju harkalega við tapi sínu í leiknum Fatal Fury: City of the Wolves gegn Goichi „GO1“ Kishida.
Myndband af viðbrögðum hans fór eins og eldur um sinu um samfélagsmiðla og hefur nú fengið yfir 18 milljón áhorf á X (áður Twitter).
Í myndskeiðinu sést KojiKOG gjörsamlega missa sig eftir tap gegn GO1. Viðbrögðin vöktu strax miklar vangaveltur á meðal áhorfenda, eins og ein umferð í bardagaleik hefði gert út um vonir hans um milljónir, húsnæði og jafnvel virðingu forfeðranna.
Kynnirinn Derry “Dezachu” Holt lýsti atvikinu á áhrifaríkan hátt:
„Það var eins og að horfa á mann sjá draum sinn leysast upp í beinni og átta sig á því að hann á bara nóg fyrir næstu máltíð.“
En þegar betur er að gáð, reyndist sannleikurinn mun jarðbundnari.
I swear to God I’m not making fun of this dude but NO ONE HAS EVER LOOKED LIKE THEY SUFFERED LIKE THIS IN HUMAN HISTORY pic.twitter.com/JekIbl1F0a
— kayos (@kayos_o) August 3, 2025
Við nánari eftirgrennslan kom í ljós að atvikið átti sér ekki rætur í vonbrigðum eða reiði heldur í gamansemi milli tveggja vina sem hafa átt langt keppnisferil saman. Samkvæmt frétt esports-news.co.uk var þetta í raun vísun í grín sem á sér tíu ára sögu, þegar þeir KojiKOG og GO1 kepptu við ólíkar aðstæður í litlu herbergi þar sem frægðin var fjarlæg og ástríðan öll.
KojiKOG tapaði vissulega leiknum, en hann var þá aðeins fallinn niður í neðri hluta mótsins (lower bracket) og átti enn raunhæfan möguleika á að komast áfram.
Að lokum var það suður-kóreski leikmaðurinn Lee „Poongko“ Chung-gon sem sló hann endanlega út, en þá lét KojiKOG engan bilbug á sér finna, tók höndum saman við andstæðing sinn og gekk brosandi frá borði.
GO1 hafði betur í mótinu og tryggði sér farseðil inn í SNK World Championship 2025, þar sem heildarverðlaunafé nemur 2,5 milljónum Bandaríkjadala. Hins vegar má með sanni segja að það hafi verið KojiKOG sem stal senunni, ekki fyrir hæfnina í leiknum, heldur fyrir það hvernig hann umbreytti einföldu tapi í minnisstætt listaverk.
Úrslitin urðu á þessa leið:
Congratulations to Top 8 of FATAL FURY: City of the Wolves at #Evo2025.
🥇 @GO13151
🥈 @ET1120
🥉 @fenritti
🏅 @efpoongko
🏅 @laggia9
🏅 @kkkog
🏅 @kubo0055
🏅 @XianMSG pic.twitter.com/UZOP1pPS7e— Evo (@Evo) August 4, 2025
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem KojiKOG lætur leikaraskapinn njóta sín eins og sjá má í þessu gamla myndbandi:
Mynd: skjáskot úr myndbandi




