Close Menu
    Nýjar fréttir

    Draumabílar styðja íslensku Counter-Strike senuna

    21.08.2026

    Fyrsta íslenska VRS mótið

    20.08.2026

    Liðsstjóramót í Apex Legends

    13.08.2026

    Frábær frammistaða Íslands í ALGS ENC 2026

    09.08.2026
    1 2 3 … 354 Next
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    esports.is
    • Forsíða
    • Tölvur og leikir
      • Íslenskt efni
      • Rafíþróttir
      • Mót framundan
      • Væntanlegt
      • Nintendo
      • PC leikir
      • Playstation
      • Xbox
    • Leikjarýni
      1. Leikjarýni
      Featured
      90

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      By Chef-Jack12.08.2025
      Recent
      9.0

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      12.08.2025
      7.0

      Leikjarýni: RC-leikurinn Recharge kemur á óvart

      07.08.2025
      5.0

      Leikjarýni: Tónlistin heillar, en leikurinn sjálfur nær ekki sömu hæðum – þarfnast enn talsverðrar yfirferðar

      30.06.2025
    • Auglýsa?
    • Um okkur
      • Hafðu samband
      • Auglýsa?
      • Fréttabréf
      • Um vefinn
      • Íslenskar Fb grúppur
    • Klönin
      • Klön yfirlit
      • Dusty
      • Oldies Samsteypan
    • is
      • is
      • en
    esports.is
    Home»Rafíþróttir - Lan-, online mót»Finnsi rafíþróttamaður ársins
    Verðlaunahátíðin Rafíþróttamaður ársins
    Finnbjörn Flosi Jónasson, Rafíþróttamaður ársins 2026.
    Rafíþróttir - Lan-, online mót

    Finnsi rafíþróttamaður ársins

    By Chef-Jack27.05.2026Updated:27.05.20262 Mins Read
    Share
    Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link

    Verðlaunahátíðin Rafíþróttamaður ársins fór fram um helgina og þar voru kynntir sigurvegarar ársins 2026.

    Árið einkenndist af sterkum frammistöðum íslenskra keppenda bæði innanlands og á alþjóðavettvangi.

    Á verðlaunahátíðinni voru veitt verðlaun í flokkum Rafíþróttamanns ársins, Rafíþróttakonu ársins, Rafíþróttakarls ársins og Björtustu vonarinnar, auk Geita ársins í sex keppnisgreinum, að því er fram kemur í tilkynningu frá RÍSÍ.

    Verðlaunahátíðin Rafíþróttamaður ársins
    Finnbjörn Flosi Jónasson, Rafíþróttamaður ársins 2026.

    Titilinn Rafíþróttamaður ársins 2026 hlaut Finnbjörn Flosi Jónasson, sem keppir undir nafninu „Finnsi“. Finnbjörn hefur átt afar sterkt tímabil með liðinu Virtus.Pro í Marvel Rivals.

    Liðið hefur unnið fjölda sigra á árinu og í nóvember tryggði það sér sæti í úrslitum á heimsmeistaramótinu í greininni þar sem Virtus.Pro hafði betur gegn liðinu NAVI með 4–1 sigri.

    Með þessum árangri skrifaði Finnbjörn sig í sögubækurnar sem fyrsti íslenski heimsmeistarinn í rafíþróttum.

    Verðlaunahátíðin Rafíþróttamaður ársins
    María Lísa Thomasdóttir, Rafíþróttakona ársins 2026.

    Titilinn Rafíþróttakona ársins 2026 hlaut María Lísa Thomasdóttir, sem keppir undir nafninu „Maeja“.

    María lék stórt hlutverk sem midlaner í liði Fenris í League of Legends síðasta haust, sigraði League of Legends mótið á Skjálfta í september og endaði í öðru sæti í úrslitakeppni KIA deildarinnar í vor.

    Verðlaunahátíðin Rafíþróttamaður ársins
    Antonio Kristófer Salvador, Rafíþróttakarl ársins 2026.

    Titilinn Rafíþróttakarl ársins 2026 hlaut Antonio Kristófer Salvador, sem keppir undir nafninu „Tony“.

    Antonio átti afar sterkt tímabil í Counter-Strike og sigraði öll helstu mót ársins með liðinu Dusty, þar á meðal haust‑ og vormót Ljósleiðaradeildarinnar og Stórmeistaramót Ljósleiðarans í lok maí.

    Verðlaunahátíðin Rafíþróttamaður ársins
    Brimir Leó Bjarnason, Bjartasta vonin 2026

    Titilinn Bjartasta vonin 2026 hlaut Brimir Leó Bjarnason, sem keppir undir nafninu „FH VELTRIC!“.

    Brimir er ungur og efnilegur keppandi í Fortnite og hefur sýnt fram á framúrskarandi árangur, bæði í keppni við jafnaldra og gegn reyndari spilurum.

    Hann er þegar farinn að byggja upp sterkt orðspor innan greinarinnar.

    Geit ársins 2026

    Titilinn Geit ársins 2026 hlutu sex leikmenn sem hafa skarað fram úr í sinni keppnisgrein innanlands og verið áberandi í mótum á liðnu tímabili.

    Hér fyrir neðan má sjá Geitur ársins 2026:

    Páll Minh Phuong Jakobsson „Legions“ — League of Legends
    Antonio Kristófer Salvador „Tony“ — Counter‑Strike
    Jon Ingvi Seljeseth „Ingmundur“ — Dota 2
    Georg Rúnar Ingimarsson „Georg“ — Overwatch
    Bjarni Þór Hólmsteinsson „Bjdn!“ — Rocket League
    Adam Kelvin Krus „Wish XD“ — Fortnite

    RÍSÍ óskar þessum frábæru rafíþróttafólki innilega til hamingju með titlana og afrekin!

    Myndir: aðsendar

    Adam Kelvin „Wish XD“ Krus Antonio Kristófer "Tony" Salvador Bjarni Þór „Bjdn!“ Hólmsteinsson Brimir Leó „FH VELTRIC!“ Bjarnason counter strike Counter Strike 2 DotA 2 Finnbjörn „Finnsi“ Jónasson Fortnite Battle Royale Georg Rúnar „Georg“ Ingimarsson Íslenskt efni Jon Ingvi „Ingmundur“ Seljeseth League of Legends María „Maeja“ Lísa Thomasdóttir Marvel Rivals navi Overwatch Páll Minh Phuong „Legions“ Jakobsson Rafíþróttamaður ársins Rafíþróttasamband Íslands Rocket League Virtus.pro
    Share. Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Chef-Jack

    Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

    Tengdar færslur

    Draumabílar styðja íslensku Counter-Strike senuna

    21.08.2026

    Fyrsta íslenska VRS mótið

    20.08.2026

    Liðsstjóramót í Apex Legends

    13.08.2026

    Frábær frammistaða Íslands í ALGS ENC 2026

    09.08.2026
    Við mælum með

    Frábær frammistaða Íslands í ALGS ENC 2026

    09.08.2026

    Dusty í baráttu um Esports World Cup

    07.08.2026

    Ísland keppir í Apex Nations Cup

    30.07.2026

    Ný rafíþróttaaðstaða á Húsavík

    30.07.2026
    1 2 3 … 11 Next
    Mest lesið
    Leikjarýni í vinnslu

    12. ágúst 2025
    Nýjasta leikjarýnin komin út: Echoes of the End

    7. ágúst 2025
    Nýleg leikjarýni: Recharge.

    30. júní 2025
    Nýleg leikjarýni: The Book of Aaru.

    Fleiri leikjarýni hér.

    esports.is
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    • Forsíða
    • Auglýsa
    • Tölvuleikir
    • Um vefinn

    Type above and press Enter to search. Press Esc to cancel.