Íslenska landsliðið í Apex Legends tekur þátt í ALGS, Esports Nation Cup 2026 (ENC 2026), þar sem sterkustu landslið Evrópu etja kappi í einni vinsælustu rafíþrótt í heimi.
Landsliðið skipa:
- Binniyaga
- Novak
- MrJon96
Binniyaga og MrJon96 eru liðsfélagar hjá íslenska liðinu No Flight Zone, sem eru ríkjandi Íslandsmeistarar í Apex Legends. Novak hefur hins vegar yfir þriggja ára reynslu af keppni í Apex Legends og keppir reglulega í ALGS EMEA Pro League Scrims, þar sem sterkustu lið Evrópu æfa sig fyrir stærstu mótin.
Frábær frammistaða í æfingaleikjum

Í gær tók íslenska landsliðið þátt í æfingascrimmi fyrir mótið þar sem nokkur af sterkustu liðum Evrópu ásamt liðum sem keppa í sömu undankeppni.
Íslenska liðið átti stórkostlega frammistöðu og sigraði æfingaleikina með 154 stig, en liðið í öðru sæti endaði með 65 stig. Frammistaða íslenska landsliðsins vakti athygli meðal þátttakenda og eftir leikina hefur íslenska landsliðinu verið spáð einu besta gengi allra nýliða á Esports Nation Cup 2026. Jafnframt telja margir að liðið geti farið langt í keppninni miðað við frammistöðuna í æfingaleikjunum.
Undankeppni hefst um helgina
Undankeppni ALGS Esports Nation Cup 2026 fer fram 1.–3. ágúst og verður spiluð á netinu.
Fyrsti keppnisdagur hefst laugardaginn 1. ágúst kl. 11:00.
Takist íslenska landsliðinu að komast áfram úr undankeppninni tryggir það sér sæti á úrslitakeppni Esports Nation Cup 2026, sem fer fram í Riyadh í Sádi-Arabíu í nóvember.
Þar munu 40 sterkustu landslið heims í Apex Legends keppa um titilinn og heiðurinn að verða fyrsta þjóðin til að standa uppi sem sigurvegari í Apex Legends á Esports Nation Cup.
Við hvetjum alla Apex-áhugamenn til að fylgjast með íslenska landsliðinu í beinni útsendingu á Twitch-rásum leikmannanna:
Novak (In-Game Leader og Shot Caller)
Einnig er hægt að horfa á upptöku af æfingascrimminu frá því í gær:
Við óskum íslenska landsliðinu innilega góðs gengis í undankeppninni og hlökkum til að fylgjast með þeim keppa fyrir Íslands hönd um helgina.
Myndir: aðsendar




