Close Menu
    Nýjar fréttir

    PUBG upphitunarskrimm haldið 26. júlí

    14.07.2026

    Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar

    23.06.2026

    Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku

    18.06.2026

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026
    1 2 3 … 352 Next
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    esports.is
    • Forsíða
    • Tölvur og leikir
      • Íslenskt efni
      • Rafíþróttir
      • Mót framundan
      • Væntanlegt
      • Nintendo
      • PC leikir
      • Playstation
      • Xbox
    • Leikjarýni
      1. Leikjarýni
      Featured
      90

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      By Chef-Jack12.08.2025
      Recent
      9.0

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      12.08.2025
      7.0

      Leikjarýni: RC-leikurinn Recharge kemur á óvart

      07.08.2025
      5.0

      Leikjarýni: Tónlistin heillar, en leikurinn sjálfur nær ekki sömu hæðum – þarfnast enn talsverðrar yfirferðar

      30.06.2025
    • Auglýsa?
    • Um okkur
      • Hafðu samband
      • Auglýsa?
      • Fréttabréf
      • Um vefinn
      • Íslenskar Fb grúppur
    • Klönin
      • Klön yfirlit
      • Dusty
      • Oldies Samsteypan
    • is
      • is
      • en
    esports.is
    Home»Tölvuleikir»Arc Raiders á útsölu í fyrsta sinn frá útgáfu
    Arc Raiders á útsölu í fyrsta sinn frá útgáfu
    Tölvuleikir

    Arc Raiders á útsölu í fyrsta sinn frá útgáfu

    By Chef-Jack22.12.20252 Mins Read
    Share
    Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link

    Arc Raiders á útsölu í fyrsta sinn frá útgáfu

    Arc Raiders er kominn á útsölu í fyrsta sinn síðan hann kom út í lok október og það aðeins nokkrum mánuðum eftir útgáfu. Samhliða vetrarútsölum á Steam og Xbox hefur verðið verið lækkað um tuttugu prósent og stendur nú í 32 Bandaríkjadölum, niður úr 40 dollurum sem þótti strax hóflegt upphafsverð miðað við umfang og gæði leiksins.

    Arc Raiders leit dagsins ljós 30. október og hlaut strax afar jákvæðar viðtökur gagnrýnenda og spilara. Leikurinn sameinar spennu PvP bardaga við PvE áskoranir í krefjandi survival umhverfi þar sem hver ferð út á kortið getur endað annaðhvort í sigri eða algjörri niðurlægingu. Þrátt fyrir að leikurinn hafi fengið gagnrýni fyrir notkun gervigreindar til að mynda raddir í stað þess að leita til mannlegra raddleikara, hefur heildarmyndin verið afar sterk og margir telja þetta einn best heppnaða extraction-leik ársins.

    Arc Raiders á útsölu í fyrsta sinn frá útgáfu

    Bak við leikinn stendur Embark Studios, sem hefur á undanförnum árum byggt upp orðspor fyrir tæknilega metnaðarfulla fjölspilunarleiki. Í Arc Raiders skín það sérstaklega í gegn hvað varðar leikflæði, hljóðhönnun og spennuuppbyggingu, þar sem jafnvel einföld undankoma getur orðið að minnisstæðu augnabliki.

    Þó rétt sé að nefna að leikurinn býður upp á fjölbreytt úrval fatnaðar og útlitsmuna gegn greiðslu þá hafa þeir engin áhrif á spilun og má algjörlega hundsa þá. Kjarni leiksins stendur sjálfstæður og ótruflaður, sem gerir afsláttinn enn áhugaverðari fyrir þá sem hafa verið tvístígandi.

    Arc Raiders er nú fáanlegur á PC og Xbox á lækkuðu verði út vetrarútsöluna og er af mörgum talið meðal bestu kaupa um þessar mundir. Fyrir áhugafólk um krefjandi fjölspilunarleiki með mikla spennu í hverri lotu gæti þetta verið rétti tíminn til að stökkva inn.

    Myndir: arcraiders.com

    Arc Raiders PC leikur Xbox
    Share. Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Chef-Jack

    Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

    Tengdar færslur

    Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku

    18.06.2026

    Leikjarinn leggur Twitch á hilluna eftir 15 ár

    14.06.2026

    Bancho snýr aftur í eldhúsið

    12.06.2026

    Nexus lokar í Kringlunni og Pedro fagnar

    25.05.2026
    Við mælum með

    Þorsteinn „TH0R“ Friðfinnsson mætir á PGL Astana

    04.04.2026

    Íslenskur Cobblemon server opnaður fyrir Minecraft aðdáendur

    28.03.2026

    Pixelwear.is tengir saman nörda- og leikjasamfélög landsins

    27.03.2026

    Íslendingurinn Torfi Frans: „Minecraft World er mikilvægt skref“

    22.03.2026
    1 2 3 … 10 Next
    Mest lesið
    • Íslenska PUBG samfélagið
      PUBG upphitunarskrimm haldið 26. júlí
      14.07.2026
    Leikjarýni í vinnslu

    12. ágúst 2025
    Nýjasta leikjarýnin komin út: Echoes of the End

    7. ágúst 2025
    Nýleg leikjarýni: Recharge.

    30. júní 2025
    Nýleg leikjarýni: The Book of Aaru.

    Fleiri leikjarýni hér.

    esports.is
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    • Forsíða
    • Auglýsa
    • Tölvuleikir
    • Um vefinn

    Type above and press Enter to search. Press Esc to cancel.