Author: Chef-Jack
Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]
Virkilega flott myndband eftir meistarann og íslenska Call of Duty spilarann Alen Haseta eða lennzy eins og við þekkjum hann. „Seinasta samfélagsmynd íslendinga í cod4 promod þar sem að samfélagið dó fyrir meira en ári“, segir lennzy meðal annars um myndbandið. Sjón er sögu ríkari:
Frábærar fréttir fyrir gömlu BF spilara, en nú er frítt að spila gamla góða Battlefield 1942 leikinn og jú líka góðar fréttir fyrir yngri kynslóðina. Ákveðið var í herbúðum BF að bjóða nú upp á frítt að spila BF:1942 vegna 10 ára afmæli þeirra. Það eina sem þú þarft að gera er að stofna account á origin.com (svipað forrit og Steam), en ef þú átt EA account, þá getur þú skráð þig inn á þeim account. „Hvað segið þið um risa hitting i hinum gamla góða 1942 á næsta sunnudag KL 21.00?“, segir Hjorleifsson ICEZ á spjallinu og þar á hann…
Síðastliðinn þriðjudag (30. október) hófst Star Wars ljósmyndakeppni Nörd Norðursins. Sinfóníuhljómsveit Íslands mun gefa vinningshöfum keppninnar miða fyrir tvo á Star Wars tónleika. Í lok nóvember mun Sinfóníuhljómsveit Íslands halda tvenna Star Wars tónleika í Hörpu, en það er bandaríski tónsmiðurinn John Williams sem á heiðurinn á því að hafa skapað tónlistina fyrir hina sívinsælu Stjörnustríðsmyndir. Sinfóníuhljómsveitin hélt sambærilega tónleika árið 2009 þar sem færri komust að en vildu. Síðastliðinn þriðjudag (30. október) hófst Star Wars ljósmyndakeppni á vegum Nörd Norðursins, sem er íslenskur vefur tileinkaður því sem telst nördalegt; tölvuleikjum, hrollvekjum, vísindaskáldskap, tækni, borðspilum og fleiru. Í keppninni þurfa…
Íslenski tölvuleikjaspilarinn Ed Hunter póstar á spjallið gameplay vídeó af leiknum Planetside 2 sem sýnir hann í terran republic skriðdreka árás og fleira. Spilamennskan lítur mjög vel út hjá honum miðað við að þetta er ekki nema í annað skiptið sem hann spilar leikinn. Horfið á myndbandið í HD! Viltu vekja athygli á vídeó, leikjahitting og annað, póstaðu það á spjallið og við skrifum um það. Fylgstumeð eSports.is á facebook hér.
Íslenska Icelandz Elitez Gaming Community (IceEz) leitar nú af fleiri spilurum í leikjasamfélagið sitt, en það heldur núna úti þremur serverum Battlefield 3, TeamSpeak 3 og fyrir leikinn DayZ og von er á fleiri serverum í framtíðinni. „Við erum með hitting á servernum okkar í Battlefield 3 á þriðjudögum og fimmtudögum kl 21.00“, segir Hjorleifsson leader í IceEz á spjallinu. Nú er um að gera að dusta rykið af vopnunum í þínum leik og joina í eitt stærsta leikjasamfélag landsins.
Closed beta í leiknum Hawken opnar á morgun föstudag, 26. október klukkan 19:00 að íslenskum tíma. Nú þegar er hægt að sækja og setja upp client’inn og smellið á eftirfarandi link http://www.playhawken.com/#beta/ Ef þú ert ekki enn búinn að næla þér í eitt eintak af beta key, þá endilega læka – Líkar þetta/Like efst upp til hægri á facebook síðu esports.is, senda skilaboð þar í gegn og þér verður sent allar upplýsingar um hæl. Fjölmargir lyklar eru í boði. Eins ef þú varst einn af þeim heppnu sem fengu aðgang að Alpha2 rennslinu, þá ertu sjálfkrafa með í Closed Beta,…
Fyrsta Closed Beta run í leiknum Hawken byrjar næstkomandi föstudag, 26. október og mun vara til 29. október. Hawken kemur út 12. desember 2012 (12.12.12.) og er fyrstu persónu skotleikur, en nánari umfjöllun um leikinn mun birtast hér á esports.is á næstu dögum. Þeir spilarar sem sækja um lyklana geta tekið þátt í öllum Closed Beta runs sem að stjórnendur leiksins koma til með að halda fyrir Hawken fram að opnu betunni. Hvernig fæ ég beta lykil? Þeir sem óska eftir að fá beta lykil í hendurnar eru beðnir um að læka – Líkar þetta/Like efst upp til hægri á…
Hittingur er á ICEZ servernum á þriðjudögum og fimmtudögum klukkan 22:00 í leiknum Battlefield 3. Allir eru velkomnir!! „Endilega mætið, kannski við verðum með vinninga einhvertímann“, segir Hjorleifsson ICEZ Leader á spjallinu.
Stofnuð hefur verið facebook grúppa fyrir Íslenska Runescape samfélagið og er það Dapeton sem á veg og vanda að stofnun hennar. Föstudags hittingar verða fastir liðir ásamt því að deila RS-screenshots og margt fleira í grúppunni. „Endilega kíkja þangað til að deila screenshottum, og auglýsa þarna eða bara til að spjalla :)“ segir Dapeton á spjallinu. eSports.is og íslenska Runescape ætla í samstarfi að efla samfélagið með fréttum og öðrum skemmtilegum viðburðum hér á esports.is. Kíkið á Íslenska Runescape samfélagið á Facebook hér og munið að adda vinum þínum í grúppuna.
Íslenskt StarCraft II online mót er að hefjast, en nú eru 23 skráðir á mótið og er keppnisfyrirkomulag double elimination með crossover. Mótið sjálft hefst mánudaginn 22. október með fyrstu umferð í riðlinum. Leikirnir í riðlinum þurfa að vera búnir fyrir 27. október, því á sunnudeginum þá verða valdir leikir úr riðlunum sýndir á stream, segir í tilkynningu á íslensku StarCraft II grúppunni á facebook. Brackets hefjast svo á þriðjudeginum 30. október kl 19:30 og þá verða spilaðar fyrstu 2 umferðirnar í winner bracketinu (bo3) og fyrstu 2 umferðirnar í loser bracketinu (bo1). Allar nánari upplýsingar er hægt að nálgast…
